

Leikskólastjóri
Leikskólastjóri óskast í leikskólann Sólhvörf
Leikskólinn Sólhvörf tók til starfa árið 2008, þar er rými fyrir 137 börn á sjö deildum. Sólhvörf fylgir áherslum Hugsmíðahyggjunnar í uppeldisstarfi leikskólans með áherslu á sjálfræði barnsins.
Leitað er að stjórnanda sem hefur góða hæfni í mannlegum samskiptum, er skipulagður og umbótadrifinn og hefur metnað til að ná árangri í starfi. Viðkomandi þarf að vera leiðtogi í sínum skóla, veita faglega forystu og búa yfir hæfni og frumkvæði til að skipuleggja skapandi leikskólastarf í samvinnu við starfsmenn, forráðafólk og menntasvið Kópavogsbæjar.
Einkunnarorð skólans eru virðing, sjálfræði og virkni.
Heimasíðan okkar er: https://solhvorf.kopavogur.is/
- Stjórnun og ábyrgð á daglegri starfsemi leikskólans og að unnið sé eftir aðalnámskrá leikskóla og skólanámskrá leikskólans
- Vera faglegur leiðtogi leikskólans sem deilir verkefnum og ábyrgð til starfsmanna í samræmi við skólanámskrá
- Rekstrarleg ábyrgð á að rekstur leikskólans sé innan ramma fjárhagsáætlunar.
- Ábyrgð á starfsmannamálum, svo sem ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun.
- Ábyrgð á foreldrasamstarfi.
- Upplýsingamiðlun til deildarstjóra og menntasviðs Kópavogsbæjar.
- Kynna sér nýjungar í starfi, miðla þekkingu til starfsmanna og hvetja til þróunar og nýbreytni í skólastarfi.
- Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara
- Framhaldsmenntun (MA, MEd, MBA eða Diplóma að lágmarki) á sviði stjórnunar eða uppeldis- og menntunarfræða
- Reynsla af starfi og stjórnun í leikskóla
- Reynsla af rekstri leikskóla og gerð og eftirfylgni fjárhagsáætlana æskileg
- Forystuhæfileikar og góð færni í mannlegum samskiptum
- Fagleg forysta, sýn og vilji til nýbreytni og þróunar í leikskólastarfi
- Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og metnaður til að ná árangri í starfi
- Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig bæði í ræðu og riti
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins
Íslenska
