Leikskólinn Hlíð
Leikskólinn Hlíð
Leikskólinn Hlíð

Leikskólakennari óskast í leikskólann Hlíð, Mosfellsbæ

Leikskólinn Hlíð er 74 barna, 5 deilda ungbarnaleikskóli fyrir eins til þriggja ára börn. Hlíð er grænfána- og vinaleikskóli þar sem áhersla er lögð á hlýlegt og gott andrúmsloft, tengslamyndun og tilfinningalegt öryggi barnanna. Unnið er markvisst með málörvun í anda snemmtækrar íhlutunar. Sérstaklega er leitað eftir kennurum með áhuga á að starfa með yngstu börnunum. Ef ekki fæst leikskólakennari verður ráðinn starfsmaður með menntun og /eða reynslu sem nýtist í leikskólastarfi.

Mosfellsbær er öflugt og framsækið sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi

Menntunar- og hæfniskröfur
Leyfisbréf leikskólakennara
Góð íslensku kunnátta
Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum
Jákvæðni, frumkvæði og góður samstarfsvilji
Góð færni í mannlegum samskiptum
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Helstu verkefni og ábyrgð
Að tileinka sér stefnu og starfsaðferðir skólans.
Samvinnufús og hefur góða hæfni í samskiptum.
Tilbúinn að taka þátt í öflugri starfsþróun.
Stundvís, samviskusamur, jákvæður, sýna frumkvæði og hafa ánægju af því að vinna með ungum börnum
Fríðindi í starfi
Samgöngustyrkur
Möguleikar á að sækja námskeið eða lengra nám samhliða starfi. t.d. námsleyfi v/leikskólakennaranáms
Sundkort
líkamsræktarstyrkur
Forgangur barna í leikskóla
Auglýsing birt3. maí 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Hlaðhamrar 4, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar