

Leikskólakennari óskast í Kópahvoli
Leikskólakennari óskast í leikskólanum Kópahvoli
Leikskólinn Kópahvoll er 4 deilda skóli, með 74 börn á aldrinum eins árs til fimm ára. Við skólann starfar reynslu mikill hópur kennara og starfsmanna sem leggur áherslu á að gera góðan skóla betri, alla daga. Unnið er að því að taka inn hugmyndafræðina uppeldi til ábyrgðar og erum við svo heppin að hafa til þess stóran og öflugan faghóp. Leikskólinn er staðsettur á fallegum stað við Víghólinn í Kópavogi sem er friðað leik- og útivistarsvæði.
Við störfum samkvæmt aðalnámskrá leikskóla, með áherslu á lífsleikni/samskipti, list og leik. Kóphvoll er þátttakandi í vináttuverkefni Barnaheilla og þróunarverkefninu snemmtæk íhlutun. Einkunnarorð skólans eru: Gleði, samkennd, frelsi og hugrekki og er heimasíða skólans http://kophvoll.kopavogur.is.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leikskólakennari eða önnur uppeldismenntun.
- Ábyrgur og jákvæður einstaklingur sem á auðvelt með mannleg samskipti.
- Sjálfstæði, tölvulæsi og metnaður í vinnubrögðum.
Ef ekki fæst leikskólakennari verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi.
Frekari upplýsingar
Starfshlutfall er 100% eða eftir samkomulagi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og KÍ.
Þeir sem ráðnir eru til starfa í leikskólum Kópavogs þurfa að skila sakavottorði.
Nánari upplýsingar gefur Halla Ösp Hallsdóttir leikskólastjóri í s. 441 6501











