
Dalur
Dalur er fjögurra deilda leikskóli og þar geta dvalið 82 börn. Einkunnarorð skólans eru virðing, ábyrgð og sjálfstæði. Leikskólinn Dalur leggur megináherslu á gæði í samskiptum til að tryggja öryggi og vellíðan barna í leikskólanum sem fylgir þeim út í lífið.
Samskipti eru grundvallarþáttur í öllu starfi leikskólans en daglega fara fram margvísleg samskipti milli ýmissa aðila s.s barna, foreldra og kennara. Lögð er áhersla á að vandað sé til þeirra samskipta sem fram fara innan leikskólans. Með umgengni við aðra læra börn undirstöðuatriði í samskiptum, þroska félagslega færni sína og sjálfsmynd. Leikskólinn er hluti af lífi flestra barna í dag en þar er þeim tryggt öryggi, fagleg umönnun og nám við sitt hæfi.
Uppeldisstefna og hugmyndafræði Dals byggir á kenningum John Dewey "learning by doing" ásamt kenningu um samskipti barna og fullorðinna eftir Berit Bae.

Leikskólakennari óskast í Dal
Leikskólinn Dalur óskar eftir leikskólakennara. Um er að ræða tímabundna ráðningu í 1 ár.
Leikskólinn Dalur Funalind 4 hóf starfsemi sína 11. maí 1998. Dalur er fjögurra deilda leikskóli fyrir börn á aldrinum 1 - 5 ára.
Leikskólinn Dalur leggur megináherslu á gæði í samskiptum til að tryggja öryggi og vellíðan barna í leikskólanum. Samskipti er grundvallarþáttur í öllu starfi leikskólans.
Einkunnarorð leikskólans eru Virðing – ábyrgð – sjálfstæði
Menntunar- og hæfniskröfur
Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun. Ef ekki fæst leikskólakennari verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi.
Ábyrgur og jákvæður einstaklingur sem á auðvelt með mannleg samskipti.
Sjálfstæð vinnubrögð.
Góð íslenskukunnátta.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felur í sér almenna kennslu.
Vinnur að uppeldi og menntun barnanna.
Tekur þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.
Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra.
Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna.
Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum.
Auglýsing birt10. september 2021
Umsóknarfrestur4. október 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Funalind 4, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Spennandi starf í frístund í Kópavogsskóla
Kópavogsskóli

Barnaskóli Hjallastefnunnar í Garðabæ, Vífilsstöðum - Umsjónarkennsla á yngsta stigi
Hjallastefnan

Sérkennari/þroskaþjálfi óskast í Heilsuleikskólann Fífusali
Fífusalir

Heimilisfræðikennari hjá Brekkubæjarskóla
Brekkubæjarskóli

Sérkennari eða þroskaþjálfi í Núp
Núpur

Deildarstjóri óskast
Heilsuleikskólinn Skógarás

Kennari í Fossvogsskóla
Fossvogsskóli

Leikskólakennari óskast í Barnaskóla Kársness
Barnaskóli Kársness

Hofsstaðaskóli - umsjónarkennari í 1. bekk
Garðabær

Stuðningsfulltrúi óskast
Helgafellsskóli

Sérkennslustjóri - Leikskólinn Hnoðraból
Borgarbyggð

Deildarstjóri
Leikskólinn Hof