Heilsuleikskólinn Holtakot
Heilsuleikskólinn Holtakot
Heilsuleikskólinn Holtakot

Leikskólakennari óskast á Heilsuleikskólann Holtakot

Heilsuleikskólinn Holtakot auglýsir eftir leikskólakennara í 100% starfshlutfall .
Holtakot er fjögurra deilda leikskóli þar sem lögð er áhersla á hreyfingu, listsköpun og hollt matarræði. Skólinn er Grænfánaskóli og starfar eftir "Uppeldi til ábyrgðar".
Einkunnarorð skólans eru: Jákvæðni, virðing og öryggi. Áhersla er lögð á metnaðarfullt starf.
Stefna leikskólans er að í skólanum starfi uppeldismenntað starfsfólk. Heimasíða leikskólans er http://www.holtakot.is/

Helstu verkefni og ábyrgð

•    Vinnur með og undir stjórn deildarstjóra
•    Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara
•    Tekur þátt í foreldrasamvinnu

Menntunar- og hæfniskröfur

•    Leyfisbréf til kennslu*
•    Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
•    Reynsla af starfi í leikskóla eða starfi með börnum er æskileg
•    Ánægja af því að starfa með börnum
•    Áhugi á heilsueflandi leikskólastarfi og hreyfingu
•    Frumkvæði, samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnu
•    Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
•    Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
*Fáist ekki starfsfólk með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.

Hlunnindi í starfi

•    Á Holtakoti er vinnuskyldan í fullu starfi 36 stundir. Vikulegur vinnutími er 38 stundir og er tveimur klukkustundum safnað upp í frítöku vegna vetrarfría, páska- og jólafría. Sérstök skráning barna er í vetrar- og jólafríi en lokað er í dymbilviku, sem og 2. janúar. Full stytting eða einn frídagur í mánuði og hluti af styttingu safnað í frídaga (sem  teknir eru utan sumarorlofstímabils)
•    Opnunartími leikskólans er 7:30-16:30 mánud.- fimmtud. og 7:30-16:00 á föstudögum
•    Fimm skipulagsdagar á ári
•    25% stöðugildi á hverri deild vegna snemmtækrar íhlutunar
•    Afsláttur er af leikskólagjöldum og forgangur inn í leikskóla fyrir börn starfssfólks
•    Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið árskort í sundlaugar bæjarins, menningarkort í Hönnunarsafnið og bókasafnskort og eftir sex mánuði í starfi getur starfsfólk fengið heilsuræktarstyrk.
•    Leikskólar reknir af Garðabæ hafa til úthlutunar sérverkefnasjóð þar sem metnaðarfullt starfsfólk hafa tækifæri til að auka við laun sín.

Auglýsing birt27. nóvember 2024
Umsóknarfrestur6. desember 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Breiðamýri, 225 Álftanes
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar