
Hjallastefnan leikskólar ehf.
Hjallastefnan ehf er framsækið menntafyrirtæki í eigu áhugafólks um skólastarf. Drifkrafturinn í rekstri Hjallastefnunnar er sú skólahugsjón sem allt starf Hjallastefnunnar byggir á. Starfsfólk fyrirtækisins trúir því staðfastlega að starf þeirra skipti miklu máli og að það eigi með vinnu sinni þátt í því að skapa betri framtíð fyrir börn þessa lands. Jafnréttisuppeldi, jákvæðni, agi, skapandi hugsun, félagsþjálfun og einstaklingsstyrking eru innviðir í námskrá Hjallastefunnar sem við teljum að geti skipt sköpum í þroska þeirra einstaklinga sem okkur er treyst fyrir. Einnig er trú okkar að öflugt fyrirtæki í sjálfstæðum skólarekstri geti skapað nýjungar og unnið að tilraunaverkefnum sem veiti hinu opinbera kerfi nauðsynlegt og tímabært aðhald í því að efla fagstarf sitt og þjónustu – öllum börnum til hagsbóta. Skólar Hjallastefnunnar starfa ákaflega sjálfstætt undir stjórn síns leik- eða grunnskólastjóra sem hefur yfirumsjón með og ber ábyrgð á daglegum rekstri skólans. Þannig hefur hver skóli sitt eigið andrúmsloft og sína eigin menningu en allir starfa þeir þó að sameiginlegu markmiði og eftir sömu námskrá sem liggur til grundvallar öllum þáttum fagstarfsins.

Leikskólakennari/leiðbeinandi-Hnoðraholt
Við hlökkum til að kynnast þér!!
Leikskólinn Hnoðraholt er 6 kjarna leikskóli staðsettur á Vífilstöðum í Garðabæ þar sem unnið er eftir hugmyndafræði Hjallastefnunnar.
Í Hnoðraholti er úrvals starfsfólk, einstök vinnustaðamenning og jákvæður skólabragur.
Við leitum að jákvæðum og lífsglöðum einstakling sem til er í að tileinka sér starfshætti Hjallastefnunnar af gleði og kærleika. Viðkomandi þarf að sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og hafa áhuga á jafnrétti og lýðræði í skólastarfi.
Betri vinnutími - klukkustund á dag í vinnustyttingu sem miðast við 100% starf.
Menntunar- og hæfniskröfur
Leikskólakennari eða önnur uppeldismenntun
Reynsla af vinnu með börnum
Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Frumkvæði í starfi
Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
Góð íslenskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Að vinna að uppeldi og menntun ungra barna
Fríðindi í starfi
Vinnustytting er ein klukkustund á dag sem miðar við 100% starf
Auglýsing birt11. nóvember 2022
Umsóknarfrestur30. nóvember 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Vífilsstaðavegur 123, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniKennariSjálfstæð vinnubrögð
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Viltu vera hluti af lifandi vinnustað og starfa í skemmtilegu vinnuumhverfi?
Leikskólar stúdenta

Leikskólakennari óskast í frábæran skóla
Vinagarður leikskóli

Kennarastaða við Grunnskóla Reyðarfjarðar
Grunnskóli Reyðarfjarðar

Deildarstjóri
Leikskólinn Hof

Kennari óskast til starfa
Leikskólinn Sjáland

Þorláksskóli leitar að fagfólki eða stuðningsfulltrúa
Þorláksskóli

Kópahvoll óskar eftir kennurum
Kópahvoll

Deildarstjóri - velkomin(n) í hópinn
Heilsuleikskólinn Kór

Leikskólakennari
Heilsuleikskólinn Kór

Viltu vera með?
LFA ehf.

Leikskólakennari/ leiðbeinandi - Dalskóli leikskóli
Dalskóli

Leikskólakennari óskast í Efstahjalla
Efstihjalli