Leirvogstunguskóli
Leirvogstunguskóli
Leirvogstunguskóli

Leikskólakennari í Leirvogstunguskóla

Leirvogstunguskóli leitar að leikskólakennurum og/eða starfsfólki leikskóla til starfa.

Það eru forréttindi að vinna í leikskóla, viltu koma og vera með ?

Í Leirvogstunguskóla eru um 112 börn á 6 deildum. Í skólanum er unnið framsækið og öflugt skólastarf þar sem kærleikurinn og gleðin er höfð að leiðarljósi. Unnið er markvisst eftir kennsluaðferðinni Leikur að læra sem gengur út á að kenna börnum hljóð, stafi, stærðfræði, form og liti í gegnum söngva, leiki og hreyfingu.

Leitað er eftir kennurum, uppeldismenntuðu fólki og/eða öðru fólki með reynslu til starfa.

Um 100% starfshlutfall er að ræða.

Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólakennaramenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Góð færni í samvinnu og samskiptum
  • Virðing og áhugi fyrir börnum
  • Fagleg framkoma
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og lausnarmiðað viðhorf
  • Góð íslenskukunnátta
Auglýsing stofnuð7. maí 2024
Umsóknarfrestur18. júní 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Laxatunga 70, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SamvinnaPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar