
Leikskólakennari
Viltu vera með í að móta framtíðina í Mánalandi?
Leikskólinn Mánaland leitar að metnaðarfullum og drífandi leikskólakennara til að bætast í okkar öfluga hóp.
Ef þú hefur brennandi áhuga á leikskólastarfi, vilt hafa raunveruleg áhrif og starfa í alþjóðlegu og lifandi samfélagi, þá er Mánaland staðurinn fyrir þig.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
- Fylgist með velferð leikskólabarna og hlúa að þeim í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins
- Þátttaka í teymisvinnu, foreldrasamstarfi og öðrum faglegum verkefnum
- Þátttaka í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar
- Þátttaka í verkefnum er snúa að mati og þróun
- Þátttaka í innra starfi og starfsmannafundum
- Að efla og viðhalda fagþekkingu sinni með reglubundinni endur- og símenntun.
- Ýmis önnur verkefni er varða uppeldi og menntun leikskólabarna í samráði við yfirmenn
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leikskólakennaranám og leyfisbréf til kennslu
- Farsæl reynsla af starfi á leikskóla kostur
- Jákvæðni, sjálfstæði og sveigjanleiki
- Opið hugarfar í tengslum við þróun skólastarf og breytingar
- Áhugi á að vinna skemmtilegt starf með börnum
- Rík færni til samstarfs og samskipta
- Gott vald á íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli
- Almenn góð tölvukunnátta
- Hreint sakavottorð skv. lögum um leikskóla
Af hverju Mánaland?
- Við fluttum í glænýtt og glæsilegt húsnæði í ágúst 2024 sem býður upp á framúrskarandi starfsaðstæður og skapandi umhverfi fyrir börn og starfsfólk.
- Við erum á vegferð þar sem við byggjum upp öflugt fagstarf frá grunni.
- Faglegur metnaður: Við vinnum samkvæmt hugmyndafræði Reggio Emilia og erum að innleiða Jákvæðan aga. Skólanámskráin okkar er nýendurskoðuð og við leggjum mikla áherslu á sköpun og lýðræði í starfi.
- Málörvun í forgrunni: Við fengum nýlega styrk til að innleiða verkefnið „Ævintýri í hverju spori, málörvun frá morgni til kvölds, sem byggir á Orð eru ævintýri á næsta skólaári – spennandi tækifæri til að dýpka þekkingu á málþroska barna.
- Alþjóðlegt umhverfi: Hjá okkur er mikil og auðgandi fjölmenning. Við lítum á fjölbreytileikann sem styrkleika og viljum þróa starfshætti okkar enn frekar á því sviði.
- Gott skipulag: Viðvera barna er 36 stundir á viku, sem gefur rými fyrir vandað skipulag og faglegt starf.
- Frábær frí og endurmenntun: Stytting vinnuvikunnar: Við nýtum styttinguna okkar á snjallan hátt! Hún er tekin út í samfelldum dögum í jóla- og páskafríum, auk nokkurra auka daga yfir árið. Þetta tryggir starfsfólki góða hvíld.
- Námsferð til Glasgow: Í apríl 2027 stefnum við öll á hvetjandi endurmenntunarferð til Glasgow þar sem við munum kynna okkur nýjungar í leikskólastarfi og þjappa hópnum saman.
Auglýsing birt5. ágúst 2026
Umsóknarfrestur19. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Ránarbraut 17
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniKennslaMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðSveigjanleiki
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Stuðningsfulltrúi óskast í leikskólann Nóaborg - 36 stunda vinnuvika
Leikskólinn Nóaborg

Forfallakennari í Álfhólsskóla 2026-2027
Álfhólsskóli

Leikskólakennarar og annað starfsfólk óskast í Krikaskóla
Krikaskóli

Kennari - Hraunvallaleikskóli
Hafnarfjarðarbær

Kennarar – Leikskólinn Hörðuvellir
Hafnarfjarðarbær

Leikskóla og frístundaliði - Hraunvallaleikskóli
Hafnarfjarðarbær

Leikskólakennari
Leikskóladeild Seyðisfjarðarskóla

Leikskólakennari óskast fyrir næsta skólaár
Helgafellsskóli

Leikskólakennari / leiðbeinandi Seljaborg
Leikskólinn Seljaborg

Leikur og málörvun - HOLT
Leikskólinn Holt

Leikskólakennari - Regnboginn leikskóli
Regnboginn

Deildarstjóri óskast á Kópastein
Kópasteinn