

Leikskólakennarar óskast í Vallarsel Akranesi
Leikskólakennarar óskast til starfa við leikskólann Vallarsel, Skarðsbraut 6, 300 Akranes. Vallarsel er sex deilda leikskóli og þar dvelja 125 börn. Leikskólinn er opinn frá klukkan 6:45 til 16:30 og skiptast starfmenn á að vinna á vöktum.
Kjörorð okkar eru Syngjandi glöð í leik og starfi
Vallarsel er tónlistarleikskóli þar sem unnið er markvisst með tónlist. Unnið er samkvæmt tónlistarnámskrá sem er aldursskipt.
Í Vallarseli er traustur og góður starfsandi. Við erum með öflugan kjarna af fólki þar sem þekking og reynsla fær að njóta sín.
Við leggjum mikið upp úr samvinnu og samheldni.
Markmið leikskólans eru að efla sjálfstraust og sjálfstæði barna í öllum daglegum athöfnum. Okkar markmikð er að hjálpa börnunum að hjálpa sér sjálf sem gerir þau að sterkum og þrautseigjum einstaklingum.
- Vinnur samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara að uppeldi og menntun leikskólabarna.
- Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfs undir stjórn deildastjóra
- Tekur þátt í starfi skólans og verkefnum eftir því sem skipulag og áherslur skólans segja til um
- Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna.
Leyfisbréf kennara- Kennaramenntun
Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum
Jákvæðni, lipurð og góð færni í samskiptum
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Góð íslenskukunnátta skilyrði
18 ára og eldri
Hreint sakavottorð












