Kópasteinn
Í Kópasteini eru 68 börn á aldrinum 1 árs til 5 ára á fjórum deildum sem eru aldursskiptar. Börnin fara í vinnustundir í tónlist, skapandi starfi og lífsleikni. Valkerfið (fjölbreyttur efniviður) er í boði í frjálsum leiktíma barnanna. Samverustundir eru daglega inni á öllum deildum.
Leikskólinn Kópasteinn hóf starfsemi árið 1964 og er fyrsti leikskólinn í Kópavogi. Kópasteinn stendur í ákaflega fögru umhverfi í hjarta Kópavogs við Borgarholtið. Kópavogskirkjan er á hæðinni fyrir ofan okkur, Listasafn Gerðar Helgadóttur blasir við og Salurinn. Þá er Borgarholtið hér allt í kring, með nýju safnaðarheimili Kópavogskirkju á horni Hábrautar. Börnin þurfa því ekki að fara langt til að upplifa fagurt útsýni, fallegar byggingar og menningu. Vettvangsferðir eru tíðar í nærliggjandi stofnanir og nánasta umhverfi.
Kópasteinn fór inn í Grænfánaverkefnið fyrir allnokkrum árum og höfum verið að flokka úrgang innan skólans síðan. Börnin eru virkir þátttakendur í því ferli en umhverfisfræðsla er stór þáttur af starfinu. Á vorin og haustin er lögð áhersla á að vinna með náttúruna í víðum skilningi. Við sáum fyrir ýmsum jurtum, setjum niður kartöflur og höldum sérstaka Umhverfisdaga í skólanum í maí.
Kópasteinn tekur einnig þátt í vináttuverkefni á vegum Barnaheilla, þar er bangsinn Blær í stóru hlutverki.
Leikskólakennarar óskast
Ert þú ábyrgur, jákvæður og sjálfstæður leikskólakennari sem hefur gaman af nýjum áskorunum? Þá gætum við verið að leita að þér!
Leikskólinn Kópasteinn hóf starfsemi 1964 og er elsti leikskóli Kópavogs. Skólinn er staðsettur í Borgarholtinu við Hábraut 1, stutt er í allar helstu menningarstofnanir bæjarins. Í skólanum eru 98 börn á fimm deildum og er húsnæði skólans í tveimur byggingum. Starfað er eftir Aðalnámskrá leikskóla með áherslu á lífsleikni, tónlist og málrækt. Við skólann starfar reynslumikill hópur kennara og starfsfólks sem leggur áherslu á að gera góðan skóla betri alla daga. Gaman saman eru einkunnarorð skólans og endurspeglar það daglegt starf.
Heimasíða leikskólans er kopasteinn.kopavogur.is
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinnur að uppeldi og menntun barnanna.
- Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra.
- Tekur þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.
- Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna.
- Sinnir þeim verkefnum er varða uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum.
- Starfið felur í sér almenna kennslu.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun.
- Ábyrgur og jákvæður einstaklingur sem á auðvelt með mannleg samskipti.
- Sjálfstæð vinnubrögð.
- Góð íslenskukunnátta.
- Ef ekki fæst leikskólakennari verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi.
Auglýsing birt29. janúar 2025
Umsóknarfrestur12. febrúar 2025
Tungumálahæfni
Íslenska
Mjög góðNauðsyn
Staðsetning
Hábraut 1, 200 Kópavogur
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)
Laus staða í Marbakka
Marbakki
Leikskólakennari
Leikskólinn Sólborg
Kennari á yngra stigi
Fellaskóli
Umsjónarkennari á miðstigi
Vatnsendaskóli
Leikskólakennari/sérkennsla
Leikskólinn Skerjagarður
Leikskólakennari, 50-100% starf
Seltjarnarnesbær
Leikskólakennari við Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla
Fjarðabyggð
Skóla- og frístundaliði - Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær
Kennari í sérdeild - Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær
Stuðningsráðgafi á skammtímadvöl fyrir fötluð börn og ungmen
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Holtaskóli – Aðstoðarskólastjóri
Reykjanesbær
Umsjónarkennari í Fjölgreinadeild - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær