Fjarðabyggð
Fjarðabyggð
Fjarðabyggð

Leikskólakennarar Leikskólann Lyngholt

Leikskólinn Lyngholt á Reyðarfirði leitar eftir ferskum og drífandi einstaklingum til að koma til starfa við skólann. Lyngholt er um 90 nemenda skóli sem skipaður er góðu og metnaðarfullu fagfólki.

Skólinn er staðsettur í glæsilegur nýlegu húsnæði við Heiðarveg á Reyðarfirði þar sem aðstaða til leiks og starfa er til fyrirmyndar. Lyngholt vinnur samkvæmt uppeldisaðferðunum Uppeldi til ábyrgðar og ART ásamt því að styrkja innleiðingu nemendalýðræðis.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
  • Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs
  • Að taka þátt í foreldrasamstarfi í samráði við deildarstjóra/skólastjórnendur.
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsleyfi sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af uppeldis og kennslustörfum æskileg
  • Góð færni í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
Fríðindi í starfi
  • Starfsmenn fá greiðslur fyrir að matast með börnum.
  • Vinnutímastytting, er hægt að taka út daglega, vikulega, mánaðarlega eða safna í lengri frí.
  • Sex skipulagsdagar eru á ári.
Auglýsing birt10. september 2024
Umsóknarfrestur25. september 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMeðalhæfni
Staðsetning
Heiðarvegur 5, 730 Reyðarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar