
Mosfellsbær
Mosfellsbær er sjöunda stærsta bæjarfélag á Íslandi með rúmlega 14.000 íbúa. Sveitarfélagið er staðsett í útjaðri höfuðborgarsvæðisins. Mosfellsbær byggir þjónustu sína á áhugasömu og hæfu starfsfólki sem hefur tækifæri til að rækta þekkingu sína og færni í jákvæðu starfsumhverfi. Mosfellsbær er öflugt og framsækið sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi. Hjá Mosfellsbæ starfa um 1200 starfsmenn.
Fjölskylduvæn og sveigjanleg mannauðsstefna styður við þá hugmyndafræði að Mosfellsbær sé eftirsóknarverður vinnustaður þar sem atvinna og fjölskylduábyrgð fara saman. Mosfellsbær er heilsueflandi samfélag sem miðar að því að þróa samfélagslegan ramma utan um markvissa og heildræna heilsueflingu, en verkefninu er ætlað að ná til allra aldurshópa í samfélaginu, bæði íbúa og starfsmanna.

Leiðtogi umhverfis og veitna
Staða rekstrarstjóri umhverfis og veitna
Við leitum að lausnarmiðuðum leiðtoga til að stýra umhverfismálum og veitustarfsemi Mosfellsbæjar.
Mikilvægt er að viðkomandi hafi ríka þjónustulund og farsæla reynslu af því að leiða starfsfólk og stýra verkefnum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á fjárhags- og áætlunarvinnu
- Er leiðtogi starfsfólks og ber ábyrgð á ráðningum
- Ábyrgð á samskiptum og þjónustu við íbúa
- Ábyrgð á mótun aðgerðaráætlana og að verkefni séu framkvæmd í samræmi við lög, reglugerðir og stefnu sveitarfélagsins
- Ábyrgð og umsjón með umhverfisverkefnum og náttúruvernd
- Ábyrgð og umsjón með ljós-, vatns-, hita- og fráveitu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi s.s. viðskiptafræði, rekstrarverkfræði eða annað sambærilegt nám
- Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi
- Farsæl reynsla af rekstri, framkvæmdum og áætlanagerð
- Farsæl reynsla af mannauðsstjórnun
- Farsæl reynsla af þjónustustjórnun og þjónustumiðaðri hugsun
- Framúrskarandi samskiptahæfni og færni í mannlegum samskiptum
- Mikið frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góðir skipulagshæfileikar og öguð vinnubrögð
- Gott vald á upplýsingatækni og framsetningu gagna
- Þekking á stjórnsýslu er kostur
- Reynsla og þekking á samningagerð, útboðs- og innkaupamálum er kostur
- Mjög góð hæfni til að tjá sig í rituðu og töluðu máli, bæði á íslensku og ensku
Auglýsing birt31. mars 2025
Umsóknarfrestur29. apríl 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Völuteigur 15, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiHreint sakavottorðMannleg samskiptiOpinber stjórnsýslaSjálfstæð vinnubrögðTeymisvinnaÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Rekstrarstjóri
Fjallsárlón ehf.

Starf forstöðumanns Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri
Gunnarsstofnun Skriðuklaustri

Rekstrarstjóri COO
Advise Business Monitor

Rekstrarstjóri Húsasmiðjunnar og Blómavals á Ísafirði
Húsasmiðjan

Veitingastjóri- Hamborgarafabrikkan
Hamborgarafabrikkan

Producer
CCP Games

Verkefnastjóri í Klúbbnum Geysi
Klúbburinn Geysir

Sölumaður / Verkefnastjóri
Fagefni ehf.

Leiðtogi í uppbyggingu og framkvæmdum
Mosfellsbær

VERKEFNASTJÓRI FJÁRMÁLA
Mögnum

Verkefnastjóri
Icelandair

Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar – Umhverfis- og skipulagssvið
Hafnarfjarðarbær