Icelandia
Icelandia
Icelandia

Leiðsögumaður í norðurljósaferðum

Ferðaskrifstofa Icelandia leitar að jákvæðum, líflegum og ábyrgum leiðsögumanni til að taka þátt í spennandi og fjölbreyttu starfi leiðsögumanns í norðurljósaferðum á komandi vetri. Ef þú ert stemningsmanneskja sem finnst gaman að segja frá og halda vel utan um hóp, þá er þetta tilvalið fyrir þig!

Um er að ræða vinnu um kvöld og nætur með viðskiptavinum sem vilja sjá eitt helsta náttúruundur heims. Tilvalin aukavinna fyrir metnaðarfulla einstaklinga.

Ferðaskrifstofa Icelandia er leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 600 einstaklingar sem leggja sig fram við að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustuupplifun. Fyrirtækið sinnir ferðafólki með ólíkri þjónustu sem spannar allt frá rútuferðum til sérsniðinna ævintýraferða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiðsögn í norðurljósaferðum.
  • Taka virkan þátt í undirbúningi ferða og vera sýnileg/ur og aðgengileg/ur á vettvangi.
  • Tryggja öryggi gesta og starfa í samræmi við umhverfis-, öryggis- og gæðaviðmið fyrirtækisins.
  • Sinna öðrum tilfallandi verkefnum eftir þörfum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af leiðsögn er æskileg.
  • Vera "næturugla" – þetta eru kvöld- og næturferðir.
  • Gild ökuréttindi B eru nauðsynleg – D réttindi mikill kostur.
  • Mjög góð enskukunnátta í töluðu máli er skilyrði – önnur tungumál eru kostur.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og fagmennska í framkomu.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð ásamt snyrtimennsku og stundvísi.
  • Jákvæðni, frumkvæði og þjónustulund.
Fríðindi í starfi
  • Einstakt tækifæri til að vinna með reyndu og jákvæðu teymi.
  • Lifandi og fjölbreytt vinnuumhverfi.
Auglýsing birt20. ágúst 2025
Umsóknarfrestur15. september 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Vatnsmýrarvegur 10, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn ökuréttindiPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.LeiðsögnPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar