Hofsstaðaskóli Garðabæ
Hofsstaðaskóli Garðabæ
Hofsstaðaskóli Garðabæ

Leiðbeinandi á frístundaheimili í Hofsstaðaskóla

Frístundaheimilið Regnboginn í Hofsstaðaskóla þjónar um 200 börnum í 1.-4. bekk og veitir þeim og foreldrum þeirra heildstæða og faglega frítímaþjónustu í samþættu skóla- og frístundastarfi. Í boði er hlutastarf eftir hádegi. Hentar vel sem aukavinna með námi og/eða öðru starfi. Opnunartími er frá kl. 13:30 -17:00. Í frístundaheimilinu dvelja börnin eftir að skóla lýkur við leiki og ýmis verkefni.Í Hofsstaðaskóla eru um 500 nemendur í 1.-7. bekk og þar starfa um 95 starfsmenn með það að markmiði að hlúa að nemendum námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu. Vel er búið að nemendum og starfsmönnum og er öll aðstaða í skólanum til fyrirmyndar. Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf sem er í stöðugri þróun. Kennsluhættir eru fjölbreyttir og vellíðan nemenda í fyrirrúmi í anda menntastefnu Garðabæjar. Þjónusta við nemendur er öflug. Nánari upplýsingar um skólann má finna á vefsíðunni www.hofsstadaskoli.is

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoða og virkja nemendur í leik og starfi á frístundaheimili
  • Leitast við að styðja nemendur í félagslegum samskiptum
  • Vinna eftir áætlun um starfsemi frístundaheimila
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af starfi með börnum
  • Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Dugnaður, jákvæðni, stundvísi og ábyrgðarkennd
  • Menntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Góð íslenskukunnátta
Auglýsing stofnuð20. nóvember 2023
Umsóknarfrestur6. desember 2023
Starfstegund
Staðsetning
Skólabraut 5, 210 Garðabær
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.SamvinnaPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar