

Lausar stöður leikskólakennara
Í Múlaþingi eru starfandi 6 leikskólar í jafnmörgum byggðarkjörnum.
Bjarkatún á Djúpavogi
Leikskólinn Bjarkatún er 2 deilda leikskóli með 37 börn staðsettur á Djúpavogi sem þekkt er fyrir fallegt umhverfi og útivistarsvæði. Leikskólinn vinnur eftir hugmyndafræði Cittaslow, Grænfána og Uppeldi til ábyrgðar. Samvinna, traust og virðing eru lykilorð okkar í leikskólanum.
Brúarás, Jökulsárshlíð
Í Brúarási er rekinn einnar deildar leikskóli með nemendur á aldrinum eins til sex ára. Leikskólinn er partur af samrekinni skólastofnun í Brúarási og mikið flæði milli skólastiga. Starfstími leikskólans er frá fyrstu starfsdögum grunnskólans til þess síðasta á vorin.
Glaumbær, Borgarfirði eystri
Glaumbær er einnar deildar leikskóli með nemendur á aldrinum eins til sex ára. Leikskólinn er rekinn sem hluti af samrekinni skólastofnum með Grunnskóla Borgarfjarðar eystri. Mikið flæði er á milli skólastofnana.
Leikskóladeild Seyðisfjarðaskóla, Seyðisfirði
Seyðisfjarðarskóli er samrekinn leik-, grunn- og listaskóli staðsettur á þremur nálægum starfsstöðvum í miðbæ Seyðisfjarðarkaupstaðar. Leikskólinn verður tveggja deilda leikskóli næsta skólaár með um 30 nemendur. Unnið er með uppeldisstefnuna Uppeldi til ábyrgðar í öllum deildum Seyðisfjarðarskóla. Einkunnarorð skólans eru: Í hverju barni býr fjársjóður.
Hádegishöfði, Fellabæ
Hádegishöfði er tveggja deilda leikskóli í Fellabæ sem starfar í anda Reggio Emilia, áhersla er á umhverfismennt og er Hádegishöfði skóli á grænni grein. Megináherslu í daglegu starfi eru að efla sjálfstæði, gleði og sköpun barna sem og virðingu þeirra fyrir sjálfum sér og öðrum.
Tjarnarskógur, Egilsstöðum
Leikskólinn Tjarnarskógur er 9 deilda leikskóli með 180 börn á tveimur starfsstöðvum. Leikskólinn horfir til fjölgreindarkenningar Howard Gardners í starfsaðferðum sínum og einkunarorð skólans eru: Gleði, virðing, samvinna og fagmennska.
Leikskólakennara vantar í eftirfarandi skóla:
- Bjarkatún
- Brúarás
- Leikskóladeild Seyðisfjarðarskóla
- Hádegishöfða
- Tjarnarskógi
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Starfið felur í sér almenna kennslu.
- Vinnur að einstaklingsbundnu uppeldi og menntun barnanna
- Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn næsta yfirmanns
- Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna.
Deildarstjóra vantar í eftirfarandi skóla:
- Tjarnarskóg í 100% starf.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati starfsins á deildinni.
- Annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á að miðla upplýsingum innan deildarinnar, milli deilda leikskólans og milli leikskólastjóra og deildarinnar.
- Ber ábyrgð á og stýrir deildarfundum og skipuleggur undirbúningstíma starfsfólks deildarinnar.











