Flóaskóli
Flóaskóli
Flóaskóli

Lausar kennarastöður við Flóaskóla

Flóaskóli er staðsettur á Villingaholti í Flóahreppi, sem er í um 20 mínútna akstursfjarlægð frá Selfossi. Í skólanum eru 105 nemendur í 1. – 10. bekk og rúmlega 30 starfsmenn. Við Flóaskóla starfar öflugur og metnaðarfullur hópur fólks sem vinnur samhent að því að skapa jákvætt og uppbyggjandi vinnuumhverfi, hlúa vel að nemendum og stuðla að því að þeir nái að vaxa og dafna í námi og starfi. Í Flóaskóla leggjum við áherslu á einstaklingsmiðað nám, teymiskennslu og öfluga stoðþjónustu. Mikil áhersla er lögð á list- og verkgreinar. Við erum heilsueflandi grunnskóli og vinnum samkvæmt hugmyndafræði „Uppeldi til ábyrgðar“ og vinnum markvisst með samskipti og líðan nemenda. Auk þess er skólinn Unesco skóli og þátttakandi í Grænfánaverkefninu.

Lausar stöður:

  • Umsjónarkennarar á mið- og unglingastigi
  • Textíl
  • Tónmennt
  • Enska
  • Danska
  • Náttúrufræði
  • Upplýsinga- og tæknimennt
  • Sérkennsla

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar veitir Gunnlaug Hartmannsdóttir, skólastjóri í síma 771-8342 og Sigrún Helgadóttir, aðstoðarskólastjóri í síma 659-8942.

Umsóknarfrestur er til og með 26. apríl 2023, ráðið verður í störfin frá 1. ágúst 2023. Umsókn með upplýsingum um menntun og starfsreynslu sendist á netfangið: [email protected].

Menntunar- og hæfniskröfur
Grunnskólakennari, uppeldismenntun eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi, leyfisbréf til kennslu, kennslureynsla æskileg
Skipulögð vinnubrögð og hæfni í samskiptum
Frumkvæði og vilji til að leita nýrra leiða í skólastarfi
Góð íslenskukunnátta og færni í upplýsinga- og tæknimennt
Þekking á „Uppeldi til ábyrgðar“ er æskileg
Áhugi á þróunarstarfi
Auglýsing birt11. apríl 2023
Umsóknarfrestur26. apríl 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Flóahreppur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Samviskusemi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar