Sveitarfélagið Vogar
Sveitarfélagið Vogar
Sveitarfélagið Vogar

Laus störf flokkstjóra í vinnuskóla

Vinnuskólinn í Sveitarfélaginu Vogum auglýsir eftir öflugum og jákvæðum flokkstjórum í Vinnuskólann fyrir sumarið 2026.

Vinnuskóli sveitarfélagsins starfar frá maí til ágúst ár hvert. Þar gefst ungmennum kostur á að vinna við fjölbreytt störf. Sem flokkstjóri ertu leiðbeinandi, fyrirmynd og drifkraftur hóps ungmenna. Þú kennir þeim undirstöðuatriði garðyrkjustarfa, skipuleggur verkefni, hvetur til góðrar samvinnu og heldur utan um mætingar og ástundun. Meginmarkmiðið er að skapa jákvæða upplifun þar sem þjálfun, fræðsla og góð líðan eru i forgrunni.

Flokkstjórar starfa undir verkstjórn verkstjóra vinnuskóla.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að stýra starfi ungmenna.
  • Kenna ungmennum rétt vinnubrögð og samskipti á vinnustað.
  • Ábyrgð á tímaskráningu ungmenna.
  • Tryggja öryggi sitt og ungmenna við störf.
  • Vinna að fegrun bæjarins.
  • Vera leiðtogi og leiðbeinandi ungmenna.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Æskilegt er að umsækjendur hafi náð 18 ára aldri
  • Áhugi á að starfa með ungu fólki og vilji til að takast á við fjölbreytt verkefni
  • Vera til fyrirmyndar í hegðun og mætingu skilyrði
  • Reynsla af garðyrkju- og umhirðutengdum störfum er kostur.
  • Jákvæðni og útsjónarsemi í starfi
  • Hafa bílpróf
Auglýsing birt5. mars 2026
Umsóknarfrestur6. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Iðndalur 4, 190 Vogar
Iðndalur 4
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar