Íþróttafélagið Leiknir Reykjavík
Íþróttafélagið Leiknir Reykjavík

Laus staða vallarstjóra

Laus er til umsóknar staða vallarstjóra hjá Leikni Reykjavík að Austurbergi 1. Vallarstjóri og hefur umsjón með húsnæði og íþróttasvæði Leiknis R.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hafa umsjón með félagssvæði og félagshúsi og almennu viðhaldi eignanna. Starfsmaður sér um og ber ábyrgð á umhirðu knattspyrnu- og æfingavalla.
  • Sjá um útleigu á sal félagsins og úthlutun tíma á völlum félagsins.
  • Starfsmaður er yfirmaður sumarstarfsmanna.
  • Á meðal annarra starfsskyldna er m.a. að sinna þrifum á félagshúsi og félagssvæði, búningum og æfingafatnaði eftir þörfum.
  • Vinnutími starfsmanns er almennt á reglulegum vöktum sem eru frá kl. 10:00 til 18:00 yfir vetrartíma og á sumartíma frá 08:00 -16:00.  Á sumrin starfar vallarstjóri á heimaleikjum hjá meistaraflokki félagsins og ber ábyrgð á umsjón þeirra.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Umsækjendur þurfa að geta unnið sjálfstætt.
  • Gott ef umsækjendur séu laghentir.
  • Um líkamlega vinnu er að ræða, getur krafist að vinna úr tröppum/stiga.
Auglýsing birt7. febrúar 2025
Umsóknarfrestur21. febrúar 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Austurberg 1, 111 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar