
Brekkubæjarskóli
Brekkubæjarskóli er annar tveggja heildstæðra grunnskóla á Akranesi. Nemendur skólans eru um 460 talsins, en starfsmenn um 100. Að auki státar skólinn af þéttriðnu neti stoðþjónustu.
Laus kennarastaða á unglingastigi við Brekkubæjarskóla
Brekkubæjarskóli er annar tveggja heildstæðra grunnskóla á Akranesi. Nemendur skólans eru um 470 talsins, en starfsmenn um 100.
Brekkubæjarskóli auglýsir eftir umsjónarkennara í afleysingar á unglingastigi skólaárið 2026 - 2027.
Um er að ræða:
- 80% stöðu umsjónarkennara á unglingastigi.
Leitað er að framsýnum, metnaðarfullum kennara sem getur unnið í góðu samstarfi við nemendur, samstarfsfólk og foreldra.
Kennarinn verður að geta skipulagt nám fjölbreytts nemendahóps þar sem allir fá tækifæri til að njóta sín á eigin forsendum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn).
- Reynsla, menntun og þekking á unglingastigi.
- Reynsla af bekkjarstjórnun.
- Reynsla af teymiskennslu og þverfaglegri samvinnu.
- Reynsla og þekking á kennsluaðferðinni gagnvirkum lestri.
- Reynsla af metnaðarfullri áætlanagerð.
- Reynsla og færni í fjölbreyttum kennsluháttum.
- Reynsla af kennslu í fjölbreyttum nemendahópi.
- Frumkvæði og sjálfstæði.
- Góð samstarfshæfni.
- Lipurð og sveigjanleiki í mannlegum samskiptum.
- Óbilandi trú á réttindum barna og ungmenna og áhugi á að starfa með þeim og foreldrum þeirra.
- Góð hæfni í íslensku máli og ritun (íslenska er ein af kennslugreinunum).
- Viðkomandi þarf að geta kennt stærðfræði, íslensku, náttúrufræði, ensku og dönsku á unglingastigi.
Auglýsing birt9. maí 2026
Umsóknarfrestur23. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Vesturgata 120, 300 Akranes
Starfstegund
Hæfni
ÁætlanagerðFrumkvæðiKennariMetnaðurSjálfstæð vinnubrögðSkipulagTeymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Heimilisfræðikennari í Hagaskóli
Hagaskóli

Deildarstjóri stoðþjónustu - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennarar á yngra stigi frá 1. ágúst 2026
Fellaskóli

Klettaskóli - Kennari / þroskaþjálfi
Klettaskóli

Deildarstjóri á yngsta stigi - Engidalsskóli
Hafnarfjarðarbær

Aðstoðardeildarstjóri tómstundamiðstöðvar - Setbergsskóli
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennari - Engidalsskóli
Hafnarfjarðarbær

Deildarstjóri á deild yngstu barna
Núpur

Leikskólakennari óskast í leikskólann Núp
Núpur

Forfallakennari í Álfhólsskóla 2026-2027
Álfhólsskóli

Kennarastöður við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar

Klettaskóli - Kennari / þroskaþjálfi
Klettaskóli