
Hreint ehf
Hreint ehf. var stofnað 12. desember 1983 og er ein elsta og stærsta ræstingaþjónusta landsins. Starfsemi félagsins hefur alla tíð snúist um að veita fyrirtækjum og stofnunum faglega alhliða ræstingaþjónustu.
Með samviskusemi og heiðarleika að leiðarljósi bjóðum við hundruð fyrirtækja og stofnana heildstæða ræstingaþjónustu og ræstum milljónir fermetra atvinnuhúsnæðis.

Launafulltrúi
Hreint leitar að nákvæmum og ábyrgðarfullum launafulltrúa til starfa.
Helstu verkefni og ábyrgð
Launavinnsla starfsmanna
Eftirlit með tímaskráningum og skráningar í kerfum
Umsjón með veikindum, frídögum og fæðingarorlofi
Samskipti við starfsmenn og stofnanir vegna launamála
Gerð vottorða og upplýsingagjöf um laun, réttindi og skyldur
Tilfallandi skrifstofu- og bókhaldsverkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
Reynsla af launavinnslu er æskileg
Góð tölvukunnátta og talnagleggni
Nákvæmni, skipulagshæfni og ábyrgðarkennd
Góð samskiptafærni og þjónustulund
Fríðindi í starfi
Við bjóðum fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf í góðu starfsumhverfi.
Auglýsing birt29. maí 2026
Umsóknarfrestur12. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Vesturvör 11, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
Launavinnsla
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (6)



