Laugarás Lagoon
Laugarás Lagoon
Laugarás Lagoon

Launafulltrúi

Laugarás Lagoon leitar að skipulögðum og metnaðarfullum launafulltrúa sem hefur áhuga á mannauðsmálum, launavinnslu og nákvæmum vinnubrögðum. Um er að ræða lykilhlutverk í daglegum rekstri fyrirtækisins þar sem áhersla er lögð á faglega og tímanlega launavinnslu, góð samskipti við starfsfólk og þátttöku í uppbyggingu Laugarás Lagoon sem nýs og spennandi áfangastaðar í hjarta Suðurlands.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á launavinnslu og tengdum ferlum

  • Úrvinnsla launa, yfirvinnu, álags, orlofs og annarra launatengdra þátta

  • Umsjón með tímaskráningu og samræmingu við launakerfi

  • Samskipti við starfsfólk vegna launa, launaseðla og skýringa

  • Samskipti við stéttarfélög, lífeyrissjóði og opinberar stofnanir

  • Umsjón með skráningu starfsmanna og breytinga í launa- og mannauðskerfum

  • Stuðningur við mannauðsmál og önnur tilfallandi skrifstofuverkefni

  • Eftirfylgni með breytingum á kjarasamningum og lagaumhverfi launamála

  • Aðkoma að einföldum bókhaldsverkefnum eftir þörfum, svo sem frágangi gagna og almennri bókhaldsumsjón

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi launafulltrúa

  • Reynsla af launavinnslu er skilyrði

  • Grunnþekking í bókhaldi er kostur

  • Góð þekking á íslenskum kjarasamningum og vinnumarkaðsreglum

  • Skipulögð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð

  • Góð samskiptahæfni og þjónustulund

  • Hæfni til að vinna með trúnaðarupplýsingar af fagmennsku

  • Sveigjanleiki og vilji til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum

  • Lausnamiðuð hugsun og jákvætt viðhorf

  • Mjög góð færni í íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli

  • Reynsla af ferðaþjónustu er kostur

Fríðindi í starfi
  • Tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu glænýs vinnustaðar í einstöku umhverfi á Suðurlandi

  • Mikilvægt hlutverk í mótun og þróun innri ferla fyrirtækisins

  • Líflegt og vaxandi starfsumhverfi innan ferðaþjónustunnar

  • Tækifæri til starfsþróunar

  • Sveigjanleiki í starfi og vinnutíma

  • Aðgangur að upplifun fyrirtækisins utan vinnutíma

  • Önnur tilfallandi fríðindi

Auglýsing birt7. febrúar 2026
Umsóknarfrestur22. febrúar 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dugguvogur 2, 104 Reykjavík
Skálholtsvegur 1, Laugarás
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.AðlögunarhæfniPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.LaunavinnslaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Microsoft Dynamics 365 Business CentralPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar