
Byko
BYKO rekur eina stærstu byggingavöruverslun landsins í Breiddinni í Kópavogi, auk verslana á höfuðborgarsvæðinu og víða um land.
Saga BYKO hófst árið 1962 þegar Guðmundur H. Jónsson og Hjalti Bjarnason opnuðu fyrstu BYKO verslunina við Kársnesbraut í Kópavogi. Frá upphafi kappkostuðu félagarnir að veita viðskiptavinum sínum, fagmönnum jafnt sem almennum húsbyggjendum, framúrskarandi þjónustu. Þessi gildi frumkvöðlanna lögðu grunninn að uppbyggingu fyrirtækisins sem nú er leiðandi í sölu á byggingavörum hér á landi.
BYKO er fjölskyldufyrirtæki og skilar það sér í menningu félagsins. Hjá BYKO starfar fjölbreyttur hópur fólks af fagmennsku, framsækni og með gleðina í fyrirrúmi. Markmið okkar er ávallt að veita viðskiptavinum okkar og starfsfólki bestu heildarupplifunina af BYKO.
Við hjá BYKO trúum við því að starfsfólkið okkar sé okkar mikilvægasta auðlind til að ná árangri. Því hefur félagið sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun starfsfólks af BYKO sem vinnustað. Lykillinn að því að fá gott starfsfólk til starfa er að hafa gott orðsport, sterka ímynd og vinnustað sem starfsfólk mælir með. Framtíðarsýn okkar vinnur að því markmiði.
Við erum stolt af því að vera vottuð sem frábært vinnustaður af Great Place to Work. Við leggjum áherslu á að stuðla að trausti, vellíðan og helgun meðal okkar starfsfólks og er vinnustaðagreining Great Place to Work okkar verkfæri í þeirri vegferð.
Við leggjum áherslu á að mæta starfsfólki okkar þar sem það er á hverjum tíma. Fríðindi starfsfólks stuðla að heilbrigðari vinnustaðamenningu þar sem er sveigjanleiki og góð samþætting á vinnu og einkalífi.
BYKO hefur fengið vottun á jafnlaunakerfi sitt og hefur með því skuldbundið sig til að greiða starfsfólki sem sinna sömu eða sambærilegum störfum sambærileg kjör. Félagið undir gengur árlega úttekt af utanaðkomandi óháðum aðila til að viðhalda vottun félagsins.
Við bjóðum starfsfólki okkar upp á:
• Fjárhagslegan styrk í allt að þrjá mánuði í fæðingar- og
foreldraorlofi
• Samgöngustyrk
• Velferðarstyrk
• Aðgang að velferðarþjónustu Heilsuverndar
• Líkamsræktartyrk
• Frí rafbílahleðsla á flestum starfsstöðvum
• Sturtuaðstöðu á starfsstöðvum
• Sveigjanlegt og fjölskylduvænt starfsumhverfi
• Niðurgreiðsla á hádegismat
• Afsláttur á vörum í verslun
• Árshátíð og haustfögnuð
• Jólagjöf og páskagjöf
• Gjafir vegan starfsaldurs
• Fjarvinnu hluta úr viku fyrir störf þar sem það er möguleiki
Stjórnendur og starfsfólk BYKO leggja mikla áherslu á að styrkja starfsemina og bæta þjónustuna við viðskiptavini sína.
Á síðari árum hefur BYKO haslað sér völl erlendis, meðal annars með uppbyggingu á öflugu timburfyrirtæki í Lettlandi. Þar er unnið timbur og timburafurðir auk þess framleiðir verksmiðjan glugga og hurðir úr timbri, svo og álklædda timburglugga.

Launa- og mannauðsfulltrúi
Við hjá BYKO erum að leita að öflugum launa- og mannauðsfulltrúa í mannauðsdeild BYKO.
Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.
Við leitum að einstaklingi með:
- Reynslu af launavinnslu
- Færni til að greina gögn og framsetningu þeirra
- Ríka þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Góða tölvukunnáttu
- Hæfni við meðferð trúnaðarupplýsinga
- Skipulögð, nákvæm og öguð vinnubrögð
- Áhuga á verslun og þjónustu
- Íslensku- og enskukunnáttu, skilyrði.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Umsjón með launavinnslu
- Umsjón með launa- og tímaskráningarkerfum
- Umsjón og eftirfylgni með viðverustefnu
- Umsjón með jafnlaunakerfi og árlegum úttektum
- Greiningar á launum og öðrum hlunnindum
- Þátttaka og stuðningur við stjórnendur við gerð launaáætlana
- Upplýsingagjöf vegna launa- og kjaratengdra mála
- Aðstoð og ráðgjöf til starfsfólks og stjórnenda í mannauðsmálum
- Stöðugar endurbætur á launaferlum og verkferlum
- Þáttaka í öðrum mannauðstengdum verkefnum
Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.
BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.
Allar nánari upplýsingar veitir Sveinborg Hafliðadóttir (sveinborg@byko.is), mannauðsstjóri.
Auglýsing stofnuð29. mars 2023
Umsóknarfrestur13. apríl 2023
Starfstegund
Staðsetning
Hlíðasmári 6, 201 Kópavogur
Skemmuvegur 2, 200 Kópavogur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Starfsmaður í áætlanagerð flugáhafna
Air Atlanta Icelandic Kópavogur 11. júní Fullt starf

Deildarstjóri Stjórnmálafræðideildar, Félagsvísindasvið HÍ
Félagsvísindasvið Háskóla Íslands Reykjavík 12. júní Fullt starf

Reikningagerð
Íslenska gámafélagið Reykjavík 30. júní Fullt starf

Ferðaráðgjafi í hópadeild
Kilroy Reykjavík 23. júní Fullt starf

Ritarar skipulags- og byggingarfulltrúa óskast
Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita bs. Laugarvatni 19. júní Hlutastarf (+1)

Bókhald - Suðurland
KPMG á Íslandi Selfoss (+1) 18. júní Hlutastarf (+1)

Hefur þú góða ritfærni og áhuga á upplýsingamiðlun?
Arion Banki Reykjavík 11. júní Sumarstarf (+2)

Viðskiptafræðingur/bókari á sölusviði
Álfasaga ehf Reykjavík Fullt starf

Bókari/uppgjörsaðili
HSE Bókhald & Uppgjör ehf. Reykjavík 9. júní Fullt starf

Aðstoðarmaður framkvæmdastjóra
Verkís Reykjavík 8. júní Fullt starf (+1)

Öflugur liðsfélagi í kynningarteymi
Verkís Reykjavík 8. júní Fullt starf (+1)

Sérfræðingur á Sölusviði
BSI á Íslandi ehf. Reykjavík 5. júní Fullt starf
Má bjóða þér smákökur? Alfreð notar vafrakökur til að greina umferð um vefinn og bæta upplifun þína. Sjá meira.