Laugalandsskóli
Laugalandsskóli
Laugalandsskóli

Laugalandsskóli auglýsir lausar stöður

Laugalandsskóli í Holtum auglýsir eftirfarandi stöður við skólann lausar til umsóknar fyrir skólaárið 2024–2025.

  • Umsjónarkennarar í 100% stöðu
  • Íþróttakennara í 100% stöðu
  • Þroskaþjálfa, iðjuþjálfa eða kennara í 70–100% stöðu í stoðteymi skólans

Viðkomandi þurfa að vera skapandi í starfi og hafa áhuga á að þróa í samvinnu við starfsfólk framsækið og faglegt starf með áherslu á fjölbreyttar námsnálganir. Í Laugalandsskóla stunda um 100 nemendur nám. Einkunnarorð skólans eru samvinna, traust og vellíðan í leik og starfi og lögð er áhersla á sjálfstæð og gagnrýnin vinnubrögð nemenda með sérstaka áherslu á félagsþroska í góðri samvinnu við foreldra.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins og viðkomandi stéttarfélags. Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um.


Nánari upplýsingar veitir Jónas Bergmann Magnússon skólastjóri í síma 8699010.
Umsóknarfrestur er til og með 20. apríl og skal senda umsóknir ásamt starfsferilskrá í tölvupósti á netfang skólastjóra; jonas@laugaland.is

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf kennara eða sambærileg menntun
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Góð íslenskukunnátta
Auglýsing stofnuð3. apríl 2024
Umsóknarfrestur20. apríl 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Laugalandsskóli 165105, 851 Hella
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar