Laugalandsskóli
Laugalandsskóli
Laugalandsskóli

Laugalandsskóli auglýsir eftirfarandi stöður við skólann

Umsjónarkennarar í 100% stöðu
Íþróttakennara í 100% stöðu
Þroskaþjálfa, iðjuþjálfa eða kennara í 70-100% stöðu í stoðteymi skólans.

Viðkomandi þarf að vera skapandi í starfi og hafa áhuga á að þróa í samvinnu við starfsfólk framsækið og faglegt starf með áherslu á fjölbreyttar námsnálganir. Í Laugalandsskóla stunda um 100 nemendur nám. Einkunnarorð skólans eru samvinna, traust og vellíðan í leik og starfi og lögð er áhersla á sjálfstæð og gagnrýnin vinnubrögð nemenda með sérstaka áherslu á félagsþroska í góðri samvinnu við foreldra.

Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Leyfisbréf kennara eða sambærileg menntun
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Góð íslenskukunnátta

Matráður í skólamötuneyti í 100% stöðu

Laugalandsskóli óskar eftir matráð í 100% starfshlutfall. Viðkomandi þyrfti að geta byrjað sem fyrst. Matráður skólans undirbýr og matreiðir máltíðir í leik- og grunnskóla.Hann sér um að útbúinn sé hollur og fjölbreyttur matur fyrir nemendur og starfsfólk. Leitað er að metnaðarfullum, barngóðum og jákvæðum einstaklingi.

Helstu verkefni og ábyrgð

· Útbýr hádegisverð fyrir nemendur og starfsfólk leik og grunnskóla.

· Hefur umsjón með þrifum á matsal og í mötuneyti.

· Sér um innkaup á matvöru, áhöldum og tækjum í mötuneyti.

· Skipuleggur matseðla, allt að mánuð fram í tímann.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins og viðkomandi stéttarfélags. Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar veitir Jónas Bergmann Magnússon skólastjóri í síma 8699010.
Umsóknarfrestur er til og með 17. maí og skal senda umsóknir ásamt starfsferilskrá í tölvupósti á netfang skólastjóra; jonas@laugaland.is


Auglýsing stofnuð3. maí 2024
Umsóknarfrestur17. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Laugalandsskóli 165105, 851 Hella
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar