
Landvörður í Þingeyjarsveit
Náttúruverndarstofnun leitar að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingi til starfa á friðlýstum svæðum í Þingeyjarsveit, þ.á.m. á Gíg gestastofu og á norðurhálendi Vatnajökulsþjóðgarðs. Landverðir sinna fjölbreyttum og mikilvægum verkefnum sem stuðla að verndun náttúru, þjónustu og innviðum. Verkefni landvarða fela meðal annars í sér að efla innviði og umhirðu svæða, fylgjast með ástandi umhverfisins og leggja sitt af mörkum til að tryggja að Ísland verði áfram einstakur staður. Landverðir gegna lykilhlutverki í að leiðbeina og fræða gesti um náttúruna og hvetja til ábyrgðar í umgengni við hana.
Í Þingeyjarsveit eru fjölmörg svæði friðlýst, þar á meðal verndarsvæði Mývatns og Laxár, Dimmuborgir, Skútustaðagígar og Goðafoss. Einnig sinna landverðir upplýsingagjöf og fræðslu á Gíg gestastofu á Skútustöðum. Norðurhálendi Vatnajökulsþjóðgarðs nær frá Jökulsá á Fjöllum í austri, að Skjálfandafljóti í vestri og inn á Vatnajökul í suðri. Landvörslustöðvar á láglendi eru á Gíg gestastofu og á hálendi í Drekagili og Herðubreiðarlindum.
Um ótímabundið vaktavinnustarf er að ræða.
- Samskipti við gesti þar sem lögð er áhersla á miðlun upplýsinga og fræðslu, meðal annars í formi fræðslugangna og barnastunda.
- Afgreiðslu og upplýsingagjöf í gestastofu.
- Umsjón og eftirlit með starfssvæðum ásamt vöktun náttúrufars til að tryggja verndun og sjálfbæra nýtingu svæðanna.
- Viðhald innviða, s.s. merking gönguleiða, umhirða svæða og ræsting.
- Eftirlit með leyfisskyldum framkvæmdum og viðburðum.
- Framúrskarandi samskiptahæfni og færni í að miðla upplýsingum á áhrifaríkan hátt.
- Sterk þjónustulund, sveigjanleiki og lausnamiðuð nálgun við fjölbreyttar áskoranir.
- Umhverfisvitund, verkkunnátta og áreiðanleiki með stundvísi að leiðarljósi.
- Góð skipulagsfærni og hæfni til að starfa undir álagi.
- Krafa er um landvarðaréttindi og gild ökuréttindi. Gild réttindi í fyrstu hjálp eru kostur.
- Starfsreynsla á friðlýstum svæðum eða önnur reynsla sem tengist verkefnum landvarða t.d. náttúrutúlkun er kostur.
- Þekking á viðkomandi starfssvæði er kostur.
- Gott vald á íslensku og ensku, frekari tungumálakunnátta er kostur.
Enska
Íslenska