BM Vallá
BM Vallá gegnir forystuhlutverki í framleiðslu á steypu- og múrvörum fyrir íslenskan byggingariðnað. Framleiðsla fyrirtækisins byggir á þekkingu, reynslu og gæðum sem endast og standast ströngustu kröfur við íslenskar aðstæður. Stjórnkerfi fyrirtækisins er gæðavottað skv. ISO 9001 og er BM Vallá eini steypuframleiðandinn á landinu með þá vottun.
Umhverfismál og sjálfbær nýting auðlinda er rauður þráður í starfseminni og hefur BM Vallá sett sér það metnaðarfulla markmið að verða umhverfisvænsti steypuframleiðandi landsins. Markvisst er stefnt að því að starfsemi og steypuframleiðsla BM Vallár verði kolefnishlutlaus árið 2030.
Fyrirtækið leggur mikla áherslu á að skapa gott vinnuumhverfi og vinnustaðamenningu. Lögð er áhersla á góð starfsskilyrði og möguleika til starfsþróunar ásamt jákvæðum og uppbyggilegum samskiptum.
BM Vallá er í eigu Eignarhaldsfélagsins Hornsteins ehf., sem á að auki Björgun og Sementsverksmiðjuna. Hjá fyrirtækjunum starfar fjölbreyttur og samhentur hópur fólks að því að gera mannvirkjagerð á Íslandi umhverfisvænni.
LAGERSTJÓRI
BM Vallá leitar að öflugum lagerstjóra á sölusvið fyrirtækisins, Breiðhöfða 3. Um er að ræða framtíðarstarf með skilgreindan vinnutíma frá kl. 7.45-17.00.
Við hvetjum öll kyn til að sækja um.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg umsjón, stjórnun og rekstur lagers
- Þjónusta við innri- og ytri viðskiptavini
- Afgreiðsla, afhendingar, skipulag og birgðahald
- Öryggis-, gæða og mannauðsmál
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
- Vinnuvélaréttindi (J) og/eða meirapróf æskilegt
- Þjónustulund, frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
- Mjög góð almenn tölvuþekking
- Góð íslensku og enskukunnátta
Auglýsing birt4. október 2024
Umsóknarfrestur14. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaMjög góð
EnskaMjög góð
Staðsetning
Breiðhöfði 3, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiHeiðarleikiJákvæðniVinna undir álagiVinnuvélaréttindiÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)
Sölu- og lagerstarf á Akureyri
BM Vallá
Starfsmaður á lager
Rafkaup
Sendibílstjóri
Bifreiðastöð ÞÞÞ
Lagerstarfsmaður
Lindex
Fjallaleiðsögumaður óskast
Katlatrack ehf
Starfsfólk í vöruhús Samskipa
Samskip
Véla- og tækjastjóri
Þingvangur ehf.
Starfsmaður í vöktun og almenn viðhaldstörf
Íslenska gámafélagið
Hlutastarf - Útkeyrsla á mat
Ráðlagður Dagskammtur
Vöruhús, vöruafhendingar og afgreiðsla
Álfaborg ehf
Blikksmiðurinn hf. leitar að Lagerstjóra
Blikksmiðurinn hf
Meiraprófsbílstjóri - Akranes
Terra hf.