

Lagerstarfsmaður - Rubix Reyðarfirði
Rubix leitar eftir öflugum lagerstarfsmanni sem starfar á starfsstöð Rubix innan athafnasvæðis Alcoa á Reyðarfirði.
RUBIX á Íslandi er með tvær starfsstöðvar, eina á Reyðarfirði sem þjónustar starfsemi Alcoa Fjarðaáls með sérsniðna og víðtæka þjónustu á sviði vöruhúsa og aðfanga vegna varahuta og rekstrarvara.
Hin starfsstöðin er í Kópavogi að Dalvegi 32a, þar sem er til húsa verslun, skrifstofa, vöruhús og verkstæði fyrir alla starfsemi á landinu. Á Íslandi starfa í dag um 40 manns, fjölbreyttur hópur sérfræðinga hver á sínu sviði. Auk sölu á varahlutum og rekstarvöru er boðið upp á ýmis konar þjónustu á Dalvegi eins og smíði á vökva- og loftslöngum, samsetningu á stýriskápum fyrir vökvakerfi og merkingar á vinnufatnaði svo eitthvað sé nefnt. Á Dalveginum er verslun eins og áður segir og þar er til sýnis hluti af því vöruframboði sem RUBIX er að bjóða upp á á hverjum tíma.











