ICEWEAR
ICEWEAR
ICEWEAR

Lagerstarfsmaður í fullt starf

Lagerstarfsmaður Icewear - pökkun í vefverslun

Icewear óskar eftir eftir að ráða kraftmikinn lagerstarfsmann í fullt starf í nýju vöruhúsi Icewear í Íshellu 1 í Hafnarfirði.

Viðkomandi þarf að vera metnaðarfullur og öflugur liðsfélagi sem hefur áhuga fyrir því að vera hluti af Icewear.

ATH Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Framtíðarstarf fyrir góðan starfskraft.

Helstu verkefni: Almenn lagerstörf við samantekt og pökkun á pöntunum til verslana Icewear, vefverslun Icewear, heildsölu og móttaka á nýjum vörum frá framleiðendum,ásamt öðrum tilfallandi verkefnum sem tengjast lagerstörfum.

Vinnutími er miðaður við kl 8.00 til kl 17.00 virka daga og tilfallandi um helgar.

Skilyrði:

  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Vinnusemi og metnaður í starfi
  • Jákvæðni og stundvísi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Geta til þess að vinna unnið undir álagi

Kostir:

- Reynsla af lagerstörfum

Um Icewear:

Icewear / Drífa ehf er ört vaxandi heildsölu- og smásölufyrirtæki sem rekur í dag nítján verslanir undir eigin merkjum, auk vefverslunar. Icewear hannar og framleiðir útivistarfatnað, ullarvörur og minjagripi og selur einnig vörur frá öðrum vörumerkjum. Skrifstofur fyrirtækisins eru staðsettar í Suðurhraini 10, í Garðabæ og glænýtt vöruhús Icewear er í Íshellu 1 í Hafnarfirði. Starfsmenn telja um 150 talsins og fyrirtækið hefur verið ört vaxandi undanafarin ár.

Umsóknir berist í gegnum Alfred ráðningarkerfi.

Auglýsing birt17. júní 2022
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Íshella 1, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.LagerstörfPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Vinna undir álagi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar