Lágafellsskóli
Lágafellsskóli
Lágafellsskóli

Lágafellsskóli - Þroskaþjálfi/iðjuþjálfi

Lágafellsskóli leitar að þroskaþjálfa/iðjuþjálfa til starfa

Má bjóða þér að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi? Viltu vera hluti af góðum og öflugum starfsmannahópi sem vinnur saman að því að mæta ólíkum einstaklingum í krefjandi verkefnum?

Lágafellsskóli í Mosfellsbæ er heildstæður grunnskóli sem vinnur í anda uppbyggingarstefnunnar.

Þroskaþjálfi/iðjuþjálfi vinnur með kennurum og öðrum samstarfsaðilum að námi og þroska nemenda sem þurfa á auknum stuðningi að halda. Hann annast þroska- og atferlisþjálfun nemenda og veitir ráðgjöf og leiðsögn til samstarfsaðila.

Mosfellsbær er öflugt og framsækið sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast námsaðlögun og stuðning við fjölbreyttan nemendahóp í samvinnu við umsjónarkennara.
  • Stuðla að velferð nemenda í góðu samstarfi við foreldra/forráðamenn og stoðþjónustu skólans.
  • Vinna með kennurum að gerð einstaklingsnámskráa og námsumhverfis sem hæfa ólíkum þörfum nemenda.
  • Æskilegt að viðkomandi hafi ART réttindi
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfi til að nota starfsheitið þroskaþjálfi/iðjuþjálfi
  • Þekking og reynsla af vinnu með nemendum með fjölþættan vanda
  • Áhugi á starfi með börnum og metnaður til að þróa öflugt skólastarf
  • Góð færni í samvinnu og teymisvinnu
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslensku kunnátta
Auglýsing stofnuð15. maí 2024
Umsóknarfrestur29. maí 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Lækjarhlíð 1, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar