Krabbameinsfélag Íslands
Krabbameinsfélag Íslands
Krabbameinsfélag Íslands

Kynningarmál og miðlun

Langar þig að finna nýjar leiðir til að takast á við nýjar áskoranir?

Við hjá Krabbameinsfélaginu lýsum eftir hæfileikaríkum eldhuga til að stýra og vinna að kynningarmálum félagsins í öflugu teymi sérfræðinga við fræðslu, fjáröflun og miðlun af öllu tagi.

Starfið er mjög spennandi og fjölbreytt og hverfist í kringum markmið félagsins og aðildarfélaga þess, sem eru að fækka þeim sem fá krabbamein, draga úr dauðsföllum af völdum krabbameina og bæta lífsgæði þeirra sem fá sjúkdóminn og aðstandenda þeirra.

Umsóknir, ásamt náms- og starfs­feril­skrá, skal senda Höllu Þorvaldsdóttur, framkvæmdastjóra Krabbameinsfélagsins, á netfangið [email protected], í síðasta lagi 16. september nk. eða á alfred.is

Halla veitir einnig nánari upplýsingar.

Menntunar- og hæfniskröfur
Í starfinu eru gerðar ríkar kröfur um frumkvæði og sjálfstæði í starfi, góða samskiptafærni og vilja til að vinna í teymi.
Viðkomandi þarf að hafa reynslu af kynningarmálum, skrifum frétta, notk­un samfélagsmiðla, samskipt­um við fjölmiðla og kunna á algeng­an hugbúnað í tengslum við miðlun í víðu samhengi, þar með talið hljóð og mynd.
Gott vald á íslensku máli er alger nauðsyn og góð þekking á ensku og norðurlandamáli er æskileg.
Viðkomandi starfsmaður þarf að vera skipulagður, skapandi, sveigjanlegur og með mikinn faglegan metnað.
Helstu verkefni og ábyrgð
Kynningarmál félagsins
Miðlun fræðslu
Miðlun tengd fjáröflunarverkefnum
Auglýsing birt11. september 2020
Umsóknarfrestur16. september 2020
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Skógarhlíð 8, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almannatengsl (PR)PathCreated with Sketch.FacebookPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.GreinaskrifPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.RitstýringPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.TextagerðPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar