BSRB
BSRB
BSRB

Kynningarfulltrúi

BSRB óskar eftir að ráða kynningarfulltrúa í fjölbreytt og krefjandi starf sem reynir á frumkvæði og sjálfstæði í áhugaverðum verkefnum. Þetta er starf fyrir aðila sem brennur fyrir þjóðfélagsumræðuna og kröfuna um réttlátara samfélag.

Kynningarfulltrúi BSRB ber ábyrgð á kynningarmálum bandalagsins, stuðlar að sýnileika þess í opinberri umræðu, heldur utan um ritstjórn á öllu útgefnu efni og kemur að skipulagningu viðburða. Kynningarfulltrúi heyrir undir framkvæmdastjóra BSRB en vinnur náið með formanni og öðrum aðilum sem taka þátt í þjóðfélagsumræðunni fyrir hönd bandalagsins.

Menntunar- og hæfniskröfur
Góð færni í íslensku og gott vald á ritun og framsetningu texta er nauðsynleg
Reynsla af störfum á fjölmiðlum og af kynningarmálum er æskileg
Þekking á vefumsjón, samfélagsmiðlum og útgáfu
Geta til að vinna hratt og undir álagi
Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur
Starfið krefst skipulagshæfileika, nákvæmni, hugmyndaauðgi sem og gagnrýninna og sjálfstæðra vinnubragða
Helstu verkefni og ábyrgð
Ábyrgð á kynningarmálum
Ritstjórn á öllu útgefnu efni
Umsjón með fjölmiðlasamskiptum og svör við fyrirspurnum fjölmiðla
Ráðgjöf til stjórnenda BSRB og starfsfólks aðildarfélaga um miðlun upplýsinga og fjölmiðlasamskipti
Skipulagning og framkvæmd viðburða á vegum bandalagsins
Umsjón með samfélagsmiðlum
Markviss vöktun á fjölmiðlum og umræðu um málefni BSRB og málefnum tengdum vinnumarkaðinum
Auglýsing birt25. janúar 2022
Umsóknarfrestur13. febrúar 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Grettisgata 89, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar