Pósturinn
Pósturinn
Pósturinn

Kvöldbílstjórar á höfuðborgarsvæðinu

Pósturinn leitar að bílstjórum í kvöldkeyrslu á höfuðborgarsvæðinu.

Starfið felur í sér að koma sendingum til skila til viðskiptavina þar sem unnið er í tímavinnu 3-5 kvöld í viku og er vinnutíminn frá 17:30 til 22:30.

Hæfniskröfur:

  • Íslensku- eða enskukunnátta er skilyrði
  • Bílpróf er skilyrði
  • Sterk ábyrgðartilfinning
  • Grunn tölvukunnátta
  • Rík þjónustulund og góð samskiptafærni
  • Lausnamiðuð hugsun

Umsóknarfrestur er til og með 3. júlí. Öllum umsækjendum verður svarað og farið er með umsóknir sem trúnaðarmál.

Nánari upplýsingar veitir Haukur Ragnars Guðjohnsen, deildarstjóri dreifingar, [email protected]

Hjá Póstinum starfar lausnamiðað starfsfólk sem tekur fagnandi á móti síbreytilegum áskorunum þar sem liðsheild, þjálfun og góður starfsandi er í fyrirrúmi. Pósturinn leggur sitt lóð á vogarskálarnar til að stuðla að sjálfbærni og hefur uppfyllt öll markmið Grænna skrefa. Pósturinn er jafnlaunavottað fyrirtæki.

Auglýsing birt25. júní 2026
Umsóknarfrestur3. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Meðalhæfni
EnskaEnska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Stórhöfði 32, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar