Kvíslarskóli
Kvíslarskóli
Kvíslarskóli

Kvíslarskóli - enskukennari

Enskukennari í Kvíslarskóla

Kvíslarskóli leitar að áhugasömum enskukennara til starfa á unglingastigi.

Um er að ræða tímabundið starf/afleysingu skólaárið 2022-2023.

Viltu vera hluti af góðum og öflugum starfsmannahópi sem vinnur saman að því að mæta ólíkum einstaklingum í krefjandi verkefnum? Má bjóða þér að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi Kvíslarskóla í Mosfellsbæ. Kvíslarskóli er unglingaskóli með 7.-10. bekk sem vinnur í anda uppbyggingarstefnunnar.

Um 100% starf er að ræða. Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2022. Afleysing til eins árs.

Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.

Menntunar- og hæfniskröfur
Leyfisbréf kennara með áherslu á grunnskólastig er skilyrði
Frumkvæði, sjálfstæði, jákvæðni og faglegur metnaður
Góð hæfni í mannlegum samskiptum
Áhugi á starfsþróun og nýjum fjölbreyttum áherslum í skólastarfi
Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki
Góð íslenskukunnátta
Auglýsing birt10. júní 2022
Umsóknarfrestur24. júní 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Skólabraut 1A, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar