

Kópavogslaug - Hlutastarf
Laugarvörður - Kópavogsluag - Hlutastarf
Laust er til umsóknar 41% starf í móttöku sundlaugarinnar og við laugarvörslu, þrif og baðvörslu í búningsklefum kvenna. Unnið er á vöktum. Á hverjum fjórum vikum eru tvær kvöldvaktir (báðar á föstudegi) klukkan 14:05 - 22:30 og tvær morgunvaktir (báðar á mánudegi) klukkan 06:15 – 14:15. Þá er ein helgarvakt (laugardagur og sunnudagur) klukkan 07:45 – 18:30 (07:45 - 20:30 eftir 1. maí), á hverjum fjórum vikum .
Kópavogslaug er staðsett í vesturbæ Kópavogs, stutt frá Hamraborginni og er einn stærsti sundstaður landsins. Þar eru sundlaugar úti og inni, ásamt heitum pottum, köldum potti, gufubaði og rennibrautum. Hjá lauginni starfa á fjórða tug manna við þjónustustörf og öryggisgæslu.
Ráðningartími og starfshlutfall
- Umsækjendur þurfa að geta hafið störf í byrjun mars.
- Starfshlutfall er 41%.
- Um framtíðarstarf er að ræða.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Allgóð sundkunnátta áskilin.
- Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri og vera reglusamir, samviskusamir, vinnusamir, þjónustulundaðir og góðir í samskiptum.
- Umsækjendur þurfa að geta unnið í búningsklefum kvenna.
- Starfið hentar ekki síður þeim sem eru komnir á og yfir miðjan aldur en þeim sem yngri eru.
- Starfið krefst allnokkurrar íslenskukunnáttu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Skipta má störfum starfsmanna sundlaugarinnar í þrjú svið, ÖRYGGI, ÞRIF og ÞJÓNUSTU.
Á vinnustaðnum eru þrjú megin störf sem starfsfólk þarf að leysa af hendi.
Laugarvarsla sem felst í öryggiseftirliti og þrifum við laugar bæði úti og inni.
Baðvarsla sem einkum er fólgin í þrifum í bað- og búningsklefum auk öryggisgæslu á þeim stöðum.
Afgreiðsla þar sem sala í laug og á ýmsum vörum fer fram, símsvörun, upplýsingagjöf, þrif og öryggiseftirlit.
Starfsmenn fá námskeið í fyrstu hjálp, björgun og fleiru.
Frekari upplýsingar
Mikilvægt er að upplýsingar um meðmælendur fylgi umsókn.
Umsóknarfrestur er til 2. mars.
Laun eru samkvæmt samningi Starfsmannafélags Kópavogs og Launanefndar sveitarfélaga.
Nánari upplýsingar veitir Jakob Þorsteinsson í netfanginu [email protected].
Stytting vinnuvikunnar - Líkamsræktaraðstaða












