Kópavogsbær
Kópavogur er næststærsta sveitarfélag landsins með rúmlega 40 þúsund íbúa.
Nafn bæjarins er dregið af jörðinni Kópavogi sem ríkissjóður átti í byrjun síðustu aldar og leigði út ásamt annarri jörð Digranesi í nágrenni hennar. Kópavogshreppur var stofnaður í byrjun árs 1948 og voru íbúar þá rúmlega 900. Hreppurinn óx hratt og voru íbúar orðnir 3.783 þegar Kópavogur hlaut kaupstaðarréttindi 11. maí árið 1955.
Í Kópavogi er mikil og fjölbreytt atvinnustarfsemi. Mest er um iðnað, þjónustu og verslun af ýmsu tagi og má geta þess að Smáralind er stærsta verslunarmiðstöð landsins.
Í bænum eru fjölbreytt tækifæri til útivistar og aðstaða til íþróttaiðkunar er með því besta sem þekkist. Þá eru Kópavogsbúar afar stoltir af menningarstofnunum sínum á Borgarholtinu, svo sem Salnum, Gerðarsafni, Náttúrufræðistofu Kópavogs, Tónlistarsafni Íslands og Molanum, ungmennahúsi Kópavogs.
Sumarstörf hjá Kópavogsbæ
Biðlisti vegna sumarstarfa
Umsóknarfrestur vegna sumarstarfa hjá Kópavogsbæ rann út 24. mars síðastliðinn. Enn er þó tekið við umsóknum á biðlista fyrir sumarstörfin. .
- Um fjölbreytt sumarstörf er að ræða, s.s. á leikskólum, í vinnuskóla, garðrækt, umönnun, á bæjarskrifstofum, sundlaugum, íþróttavöllum og skólagörðum.
- Öllum er frjálst að sækja um en Kópavogsbúar hafa þó forgang til ráðningar, að uppfylltum þeim skilyrðum sem sett eru fram í hverju starfi fyrir sig.
Frekari upplýsingar
Þar sem um ýmis störf er að ræða er starfshlutfall og ráðningartími mismunandi.
Launkjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Kópavogsbæjar eða viðeigandi stéttarfélag.
Eingöngu er tekið á móti rafrænum umsóknum í gegnum ráðningarvef Kópavogsbæjar.
Auglýsing stofnuð20. júní 2019
Umsóknarfrestur7. júlí 2019
Starfstegund
Staðsetning
Fannborg 2, 200 Kópavogur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)
Elda - Afgreiðslustörf á Keflavíkurflugvelli / Food service
SSP Iceland
Eldhús- og afgreiðslustörf / Kitchen and front desk
Finsen Matur & Vín
Starfskraftur óskast K&S KEF - Keflavíkurflugvöllur
Herrafataverslun Kormáks & Skjaldar
Sumarstarf í verslun á Selfossi
Þór hf.
Kvöld og helgar vinna, hlutastarf 20 ára og eldri
Snooker & Pool
Jarðvinna / Groundwork
Membra
Deildarstjóri óskast
Barnaheimilið Ós
German speaking guide
Skógasafn
Suðurhlíð - Teymisstjóri
Suðurhlíð
Laus störf við Auðarskóla í Dalabyggð
Auðarskóli
Sumarstarf í íbúðakjarna í Þorláksgeisla
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Leita að eðalfólki í liðið mitt auk sumarafleysingu
NPA miðstöðin