
Laugarás Lagoon
Í sumar bætist ný perla í einstakt landslag uppsveita Árnessýslu. Laugarás Lagoon er nýr baðstaður í hjarta Suðurlands, við hina glæsilegu brú sem liggur yfir Hvítá við byggðina í Laugarási. Baðstaðurinn er hannaður þannig að hann fellur á fullkominn hátt inn í landslagið og veitir gestum einstaka upplifun með baðlóni á tveimur hæðum og einstöku útisvæði. Nákvæm dagsetning opnunar verður tilkynnt með vorinu.
Mikilvægur þáttur í töfrum Laugarás Lagoon verður veitingastaðurinn Ylja sem Gísli Matthías Auðunsson fer fyrir. Á Ylju munu gestir njóta matreiðslu sem nýtir ferskt sjávarfang, afurðir frá bændum á Suðurlandi, þá ekki síst hið ljúffenga grænmeti sem svæðið er þekkt fyrir.

Kokkar / Chefs
(English below)
Viltu verða hluti af öflugu eldhústeymi þar sem jákvæðni, fagmennska og góð orka mætast?
Í sumar opnar nýr veitingastaður í hjarta Suðurlands – Ylja, undir stjórn Gísla Matts, þar sem áhersla er lögð á ferskt hráefni úr nærumhverfi og matargerð sem tengir saman náttúru og menningu.
Við leitum að metnaðarfullum kokkum til að verða hluti af eldhústeymi sem vinnur náið saman að því að skapa upplifun sem stendur upp úr.
Helstu verkefni og ábyrgð
Helstu verkefni og ábyrgð
- Undirbúningur og matreiðsla samkvæmt uppskriftum og gæðum staðarins
- Virk þátttaka í þróun matseðils og sköpun nýrra rétta
- Gæsla hreinlætis, verklags og faglegra vinnubragða
- Vinna náið með öðru eldhúsfólki og þjónustuteymi til að tryggja framúrskarandi upplifun gesta.
Menntunar- og hæfniskröfur
Við leitum að einstaklingum sem...
- Hafa reynslu af eldhússtörfum og/eða menntun í matreiðslu
- Geta unnið undir álagi með faglegu og jákvæði viðhorfi
- Búa yfir matarástríðu og faglegu viðhorfi
- Eru lausnamiðuð, skipulögð og vinna vel undir álagi
- Eru liðsheildarfólk sem kunna að meta gott vinnuumhverfi
Fríðindi í starfi
Við bjóðum upp á
- Einstakt tækifæri til að taka þátt í nýju og skapandi verkefni undir stjórn Gísla Matts
- Samstarf við kraftmikið og fjölbreytt teymi
- Líflegt starfsumhverfi þar sem áhersla er lögð á matarást, virðingu og gleði
- Við getum boðið upp á húsnæði í nálægð við vinnustaðinn.
- Aðgang að þjónustu fyrirtækisins
Auglýsing birt16. apríl 2025
Umsóknarfrestur11. maí 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Skálholtsvegur 1, Laugarási
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sumarstarf í mötuneyti
Securitas

Central kitchen job 15. May until 27. June
Marinar ehf.

Matreiðslumaður - afleysing
Ráðlagður Dagskammtur

Aðstoðamaður í eldhús
Hótel Varmaland

Kokkur í hlutastarfi
Sól resturant ehf.

Starf í matvælaframleiðslu
Skólamatur

Við leitum að kraftmiklum liðsfélaga á veitingastaðinn INTRO
Múlakaffi ehf

Aðstoð í mötuneyti Elkem Grundartanga- sumarafleysing
Múlakaffi ehf

Starfsmaður í framleiðslu
Gæðabakstur

Aðstoðarmatráður - Leikskólinn Grænaborg
Suðurnesjabær

Súkkulaðigerð/Chocolate making Frá 06.00-14.00
Omnom

Vanur grillari - Experienced grill flipper
Stúdentakjallarinn