
Stöð 2, Vísir og Bylgjan
Sýn er leiðandi fyrirtæki á sviði fjarskipta og fjölmiðlunar á Íslandi. Undir Sýn heyra vörumerkin Vodafone, Stöð 2, Vísir, Bylgjan, FM957, X-977, Stöð 2 Sport og dótturfélagið Endor. Hjá okkur starfar samheldinn hópur fólks sem leitast stöðugt við að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu.
Hjá Sýn leggjum við áherslu á að starfsfólk upplifi vellíðan í vinnu. Það gerum við með því að búa starfsfólki framúrskarandi vinnuaðstöðu, huga að líkamlegri og andlegri heilsu þess og gefa því möguleika á sveigjanleika í vinnu. Við viljum að fólki líði vel í vinnunni, upplifi sig sem hluta af sterkri liðsheild, fái útrás fyrir sköpunarþörf sína og tækifæri til að takast á við verkefni þar sem styrkleikar þeirra fá helst notið sín. Sýn vill þannig stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og góðu sjálfstrausti starfsfólks og að starfsfólk sýni frumkvæði í starfi. Við trúum því að fyrirtækinu gangi best þegar starfsfólkið er upp á sitt BESTA.
Klippari
Ert þú skemmtilegur og skapandi klippari í leit að frábærum vinnustað? Þá erum við í markaðsdeild Vísis, stöðvar 2 og útvarpsmiðla að leita að þér! Starfið felst í því að klippa stiklur fyrir efni framleitt af fjölmiðlum okkar. Starfinu fylgir öll eftirvinnsla t.d. hljóðvinnsla, grafík og litaleiðrétting efnis.
Menntunar- og hæfniskröfur
Nám í kvikmyndagerð eða mikil reynsla af klippivinnu
Góð almenn tölvu- og tækniþekking
Þekking á Adobe-forritum með áherslu á Premiere Pro
Kunnátta í kvikmyndatöku og grafík er kostur
Sköpunargleði og lausnamiðuð hugsun.
Áreiðanleiki og stundvísi
Geta til að vinna hratt og örugglega undir álagi
Góð skipulagshæfni og framúrskarandi samskiptahæfni
Auglýsing birt20. september 2022
Umsóknarfrestur28. september 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
KlippivinnaKvikmyndagerðPremiere
Starfsgreinar
Starfsmerkingar


