

Kennslustjóri sérnáms í almennum lyflækningum
Laust er til umsóknar hlutastarf kennslustjóra sérnáms í almennum lyflækningum við Landspítala frá 1. nóvember 2023 eða skv. samkomulagi. Kennslustjóri er leiðtogi og fyrirmynd og ber ábyrgð á innihaldi, gæðum og framkvæmd sérnáms í almennum lyflækningum auk víðtækrar leiðandi aðkomu að starfsmannamálum sérnámslækna. Meginhlutverk er að tryggja öflugt sérnám og stuðla þannig að árangursríkum lækningum, góðri þjónustu og öryggi sjúklinga ásamt viðeigandi mönnun greinarinnar til framtíðar. Þá gegnir kennslustjóri einnig mikilvægu hlutverki í uppbyggingu og framkvæmd vísindastarfa og umbótavinnu.
Kennslustjóri vinnur í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra, yfirlækna, umsjónarsérnámslækna og annað samstarfsfólk. Kennslustjóri hefur aðgang að skrifstofuaðstöðu innan lyflækninga og skrifstofu sérnáms og starfar náið með skrifstofustjóra og verkefnastjórum. Næsti yfirmaður er yfirlæknir sérnáms. Lesa má nánar um hlutverk kennslustjóra í reglugerð 856/2023.
Leitað er eftir sérfræðilækni með víðtæka reynslu og hæfni til að vera í forystu sérnáms í almennum lyflækningum. Um er að ræða 60% starfshlutfall.





























































