Kennsluráðgjafi hjá skóla- og frístundaþjónustu Múlaþings
Kennsluráðgjafi með áherslu á ráðgjöf og stuðning við stofnanir um kennslu- og starfhætti í inngildandi skólastarfi.
Laus er til umsóknar 100% framtíðarstarf kennsluráðgjafa hjá skóla- og frístundaþjónustu Múlaþings. Næsti yfirmaður er fræðslustjóri.
Um framtíðarstarf er að ræða.
Kennsluráðgjafi veitir ráðgjöf, stuðning og leiðsögn til stofnana innan skóla- og frístundaþjónustu Múlaþings með áherslu á grunnskóla. Hann tekur þátt í samstarfi við að innleiða lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna og inngildandi skólastarf. Kennsluráðgjafi fylgist með rannsóknum og miðlar nýjungum varðandi þarfir barna og skólastarfs og hann veitir stuðning við nýbreytni- og þróunarstarf í skólum. Hann vinnur í þverfaglegu samstarfi. Hann þarf að hafa framhaldsmenntun sem nýtist í starfi og reynslu af kennslufræðilegri ráðgjöf er kostur.
- Veitir ráðgjöf, stuðning og leiðsögn til starfsfólks skóla um kennslu- og starfshætti í inngildandi skólastarfi.
- Veitir ráðgjöf, stuðning og leiðsögn til starfsfólks skóla um nýtbreytni og umbætur í skólastarfi, starfsþróun og annarrar starfstengdrar leiðsagnar.
- Veitir fræðslu og ráðgjöf til foreldra og starfsfólks skóla vegna einstaklinga og /eða hópa með fjölbreyttar þarfir.
- Tekur þátt í innleiðingu á lögum um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna.
- Fylgist með rannsóknum og miðlar nýjungum varðandi þarfir barna og skólastarfs.
- Veitir stuðning við nýbreytni- og þróunarstarf skóla.
- Vinnur í þverfaglegu samstarfi félags- og skóla- og frístundaþjónustu.
- Leyfisbréf kennara.
- Framhaldsmenntun (M.A., M.Ed. eða M.S.) á sviði uppeldis- og menntunarfræða, sérkennslufræða eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
- Haldgóð reynsla af kennslu í grunnskóla, 5 ár eða meira.
- Reynsla af kennslufræðilegri ráðgjöf og/eða kennslufræðilegri forystu er kostur.
- Góð þekking á fjölbreyttum náms- og kennsluaðferðum.
- Góð innsýn í lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna.
- Innsýn á stefnumarkandi þætti á sviði menntamála og breytingaferli.
- Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og metnaður til að ná árangri í starfi.
- Sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfileikar.
- Góð færni til að tjá sig bæði í ræðu og riti á íslensku.
- Krafa um bílpróf.
- Hreint sakavottorð.