Kóraskóli
Kóraskóli
Kóraskóli

Kennari/stoðkennari í Kóraskóla

Við í Kóraskóla leitum að skapandi, faglegum og áhugasömum kennara til að taka þátt í framsæknu skólastarfi með okkur.

Starfið er er kennsla í teymi þar sem áhersla er lögð á þematengt verkefnamiðað leiðasagnarnám.

Kóraskóli er nýr skóli sem tók til starfa haustið 2023. Í skólanum eru 280 nemendur í 8.-10. bekk og um 30 starfsmenn. Í skólanum er lögð áhersla á skapandi og framsækið skólastarf og eru allir nemendur skólans með spjaldtölvur. Í námi og kennslu er rík áhersla á einstaklingsmiðun náms, fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, verkefnamiðað nám, samþætt þemanám, teymiskennslu og samkennslu.

Helstu verkefni og ábyrgð

Annast kennslu nemenda á unglingastigi í nánu samstarfi með árgangateymi

Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk

Vinnur samkvæmt stefnu skólans

Menntunar- og hæfniskröfur

Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)

Góð íslenskukunnátta

Þekking og reynsla af teymiskennslu æskileg

Þolinmæði og góð hæfni í mannlegum samskiptum

Framsækni í kennsluháttum

Sjálfstæði, drifkraftur og brennandi áhugi fyrir skólaþróun

 

Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frítt í sundlaugar Kópavogs.

Auglýsing birt23. júlí 2024
Umsóknarfrestur5. ágúst 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Vallakór 14, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Kennari
Starfsgreinar
Starfsmerkingar