Leikskólinn Nóaborg
Leikskólinn Nóaborg

Kennari óskast í leikskólann Nóaborg

Leikskólinn Nóaborg, Stangarholti leitar að kennara sem talar mjög góða íslensku og er starfið laust frá miðjum ágúst eða eftir nánara samkomulagi. Um er að ræða fullt starf.

Leikskólinn Nóaborg er staðsettur í Stangarholti 11, rétt ofan við Hlemm. Einkunnarorð leikskólans eru Leikum-Lærum- Njótum. Leikskólinn leggur áherslu á læsi og íslenskt mál auk þess sem Nóaborg er þátttakandi í Nordplus verkefni um hreyfingu leikskólabarna.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félag leikskólakennara.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Margrét Ólafsdóttir, leikskólastjóri í síma 693-9830 eða með tölvupósti á netfangið [email protected]

    Helstu verkefni og ábyrgð

    Kennsla og ummönnun leikskólabarna undir leiðsögn deildarstjóra

    Menntunar- og hæfniskröfur

    -Leyfisbréf kennara

    -Sjálfstæð vinnubrögð

    -Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum

    -Íslenskukunnátta B2 samkvæmt samevrópskum matskvarða um tungumálaviðmið.

    -Hreint sakavottorð

    -Reynsla af leikskólastarfi æskileg

    -Faglegur metnaður og brennandi áhugi á starfi með börnum

    -Frumkvæði í starfi

    Fríðindi í starfi

    -36 stunda vinnuvika

    -Sundkort

    -Samgöngustyrkur

    -Menningarkort

    -Líkamsræktarstyrkur

    -Frítt fæði

    -Forgangur í leikskóla fyrir börn starfsmanna þegar börnin hafa náð eins árs aldri

    Auglýsing birt14. júní 2026
    UmsóknarfresturEnginn
    Tungumálahæfni
    ÍslenskaÍslenska
    Nauðsyn
    Framúrskarandi
    Staðsetning
    Stangarholt 11, 105 Reykjavík
    Starfstegund
    Starfsgreinar
    Starfsmerkingar