Varmárskóli
Varmárskóli
Varmárskóli

Kennari í Varmárskóla

Vegna forfalla vantar kennara í Varmárskóla í Mosfellsbæ.

Í skólanum eru um 400 nemendur í 1.-6. bekk. Skólinn er Uppbyggingarskóli, tekur þátt í Grænfánaverkefninu og verið er að vinna að innleiðingu á Leiðsagnarnámi. Okkur vantar kennara sem getur komið inn í hópastarf í einum til tveimur árgöngum. Starfsmannahópurinn í Varmárskóla er öflugur og samvinna og samhjálp eru einkennandi fyrir samskipti innan hópsins. Okkur vantar kennara sem er tilbúinn til að takast á við fjölbreytt verkefni og verða partur af þessum góða samstarfshópi. Mögulegt starfshlutfall getur verið frá 46 - 90% og hægt að fara í fullt starf með því að taka forföll aukalega.

Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Meginviðfangsefni er kennsla í íslensku og stærðfræði á yngsta stigi.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslustarfa
  • Reynsla sem nýtist í starfi
  • Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
  • Góð færni í samvinnu og samskiptum
  • Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki
  • Mjög góð íslenskukunnátta
Auglýsing birt25. nóvember 2024
Umsóknarfrestur16. desember 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skólabraut 1A, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar