Breiðholtsskóli
Breiðholtsskóli

Kennari í textílmennt við Breiðholtsskóla frá 1. ágúst 2026

Breiðholtsskóli leggur áherslu á árangur fyrir alla nemendur og teymisvinnu starfsmanna. Við erum fjölmenningarlegt samfélag og leitum að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði og góðri fagþekkingu á skólastarfi og er tilbúinn til þess að taka þátt í öflugri skólaþróun í samheldnum starfsmannahópi.

Breiðholtsskóli er heildstæður grunnskóli með um 360 nemendur í hjarta Breiðholtshverfis í Reykjavík við Arnarbakka 1-3. Skólinn er með vel búnum kennslustofum, útisundlaug, stórt íþróttahús, snilliver, danssal og fallegum hátíðarsal.

Við skólann er lögð áhersla á árangur fyrir alla nemendur og einkunnarorðin ábyrgð, traust og tillitssemi eru leiðarljós í daglegu starfi skólans. Við sem hér störfum erum stolt af skólanum okkar sem státar af fjölmenningarlegu samfélagi nemenda, foreldra og starfsmanna. Í Breiðholtsskóla er lögð áhersla á skapandi og skemmtilegt skólastarf, læsi, félagsfærni og sjálfseflingu.

Lögð er áhersla á samvinnu starfsmanna þar sem allir taka virkan þátt í þróun skólastarfsins í anda Aðalnámskrár, Menntastefnu Reykjavíkurborgar og leiðsagnarnáms.

Helstu verkefni og ábyrgð

• Að annast textílkennslu nemenda í samráði við skólastjórnendur.

• Að stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk.

• Að þróa framsækið skólastarf í takti við stefnu skólans.

• Að vinna í teymi með öðru starfsfólki.

Menntunar- og hæfniskröfur

Kennaramenntun og leyfisbréf kennara.

• Reynsla og þekking á fjölbreyttum kennsluaðferðum.

• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.

• Faglegur metnaður og sveigjanleiki í starfi.

• Lipurð í samskiptum og jákvæðni.

• Góð tölvu- og tæknikunnátta.

• Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum

Self-assessment Grids (CEFR) - European Language Portfolio (ELP) (coe.int)

• Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

 

Fríðindi í starfi

·       Menningarkort og bókasafnskort.

·       Samgöngustyrkur.

·       Sundkort.

·       Heilsuræktarstyrkur.

Auglýsing birt10. mars 2026
Umsóknarfrestur24. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Arnarbakki 1-3, 109 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Kennari
Starfsgreinar
Starfsmerkingar