Fellaskóli
Fellaskóli
Fellaskóli

Kennari í sérdeild fyrir nemendur með einhverfu

Í Fellaskóla er fjölbreyttur og hæfileikaríkur nemendahópur. Flestir nemendanna tala fleiri en eitt tungumál og tengjast fjölmörgum löndum og menningarsvæðum. Með nemendum starfar öflugur hópur starfsfólks. Skólastarfið einkennist af jákvæðum skólabrag, mikilli samvinnu kennara sem miðar að því að koma til móts við ólíkar þarfir nemenda, styrkja samskipti innan nemendahópsins og skapa metnaðarfullt námsumhverfi án aðgreiningar þar sem nemendur geta látið drauma sína rætast.

Í sérdeild Fellaskóla fyrir nemendur með einhverfu eru 15 nemendur í 1. - 10. bekk. Við leggjum áherslu á einstaklingsmiðað nám en jafnframt að nemendur séu eins mikið þátttakendur í bekkjarstarfi og mögulegt er. Í deildinni starfar hópur fagfólks og stuðningsfulltrúa í góðu samstarfi við annað starfsfólk skólans.

Við höfum undanfarið unnið að ýmsum verkefnum til að bæta kennslu og aðra þjónustu við nemendur. Megináhersla er á málþroska og læsi, leiðsagnarnám og teymisvinnu kennara, ásamt tónlist og skapandi skólastarfi. Haustið 2024 hefst nýtt þróunarverkefni í samstarfi við Háskólann á Akureyri sem hefur að markmiði að efla læsi og skapandi vinnu á eldra stigi.

Nú vantar okkur kennara í hópinn á eldra stigi. Kennt er í teymum og vinna kennari, þroskaþjálfi og stuðningsfulltrú saman skipulagi kennslu, hópaskiptingu og bera sameiginlega ábyrgð á hópnum.

Fellaskóli er símalaus skóli, sem þýðir að nemendur nota ekki síma á skólatíma.

Vegna forfalla leitum við að kennara eða starfsmanni með viðeigandi menntun / reynslu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast kennslu og þjálfun nemenda á eldra stigi.
  • Vinnur einstaklingsáætlanir í samstarfi við fagfólk sérdeildar og aðra kennara. 
  • Tekur þátt í samstarfi sérdeildar og innan skólans. 
  • Á í samstarfi við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa. 
  • Vinnur að þrólun skólastarfs með stjórnendum og starfsfólki.
  • Stuðla að farsæld nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
  • Áhugi á að starfa með börnum.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Faglegur metnaður.
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Reynsla af teymisvinnu og vinnu með nememdum með sérþarfir er kostur. 
  • Mjög góð íslenskukunnátta.
Auglýsing birt30. janúar 2025
Umsóknarfrestur14. febrúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Norðurfell 17-19 17R, 111 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar