Kóraskóli
Kóraskóli
Kóraskóli

Kennari í náttúrugreinum á unglingastigi

Við í Kóraskóla leitum að skapandi og áhugasömum kennara til að slást í hópinn okkar og taka þátt í framsæknu skólastarfi út núverandi skólaár, með möguleika á áframhaldandi ráðningu næsta skólaár.

Starfið felst í kennslu náttúrufræði í öllum árgöngum skólans. Leitað er eftir kennara með sérhæfingu í kennslu náttúrufræðigreina.

Kóraskóli er við Vallakór í Kópavogi sem tók til starfa haustið 2023. Í skólanum eru um 280 nemendur í 8.- 10. árgangi og 35 starfsmenn. Í skólanum er lögð áhersla á skapandi og framsækið skólastarf og eru allir nemendur skólans með spjaldtölvur. Í námi og kennslu er rík áhersla lögð á einstaklingsmiðun náms, fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, verkefnamiðað nám, samþættingu námsgreina og teymiskennslu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast kennslu nemenda á unglingastigi í nánu samstarfið við önnur teymi skólans
  • Heldur utan um skipulag kennslu í náttúrugreinum í öllum árgöngum
  • Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Vinnur samkvæmt stefnu skólans
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem á sviði kennslu eða náttúruvísinda
  • Góð þekking á náttúruvísindum, áhugi og metnaður fyrir miðlun
  • Góð íslenskukunnátta
  • Þekking og reynsla af teymiskennslu æskileg
  • Þolinmæði og góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Framsækni í kennsluháttum
  • Sjálfstæði, drifkraftur og brennandi áhugi fyrir skólaþróun
  • Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins

Auglýsing birt16. mars 2026
Umsóknarfrestur30. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Vallakór 14, 203 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar