
Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóli
Í Breiðdals-og Stöðvarfjarðarskóla er góður starfsandi sem einkennist af jákvæðni og gleði. Við skólann starfar samhentur hópur starfsfólks.
Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóli skiptist í eina grunnskóladeild og tvær leikskóladeildir.

Kennarastöður við Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla
Leitað er að kennurum sem eru reiðubúnir að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks sem innir af hendi skemmtileg og krefjandi störf með nemendum skólans.
Breiðdals-og Stöðvarfjarðarskóli er samrekinn leik-og grunnskóli og í honum eru nemendur á aldrinum 1 - 16 ára. Kennt er í báðum byggðakjörnum, Breiðdalsvík og Stöðvarfirði og nemendum á grunnskólaaldri er ekið á milli byggðarkjarna. Nánari upplýsingar á heimasíðu skólans bsskoli.is
Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóli vinnur samkvæmt uppeldisaðferðinni Uppeldi til ábyrgðar. Skólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipuleggur nám, kennslu og námsmat nemenda samkvæmt markmiðum og námskrá.
- Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
- Annast kennslu nemendahóps.
- Vinna með bekkjarbrag og menningu.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
- Vinna samkvæmt stefnu skólans og taka þátt í þróunarverkefnum innan skólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf til kennslu, starfsreynsla er æskileg.
- Samskipta og samstarfshæfni.
- Frumkvæði og faglegur metnaður.
- Ábyrgð í starfi og stundvísi.
- Færni til að innleiða nýjungar.
- Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. Evrópska tungumálarammanum
Auglýsing birt12. mars 2026
Umsóknarfrestur9. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Breiðdalsvík- og Stöðvarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Starf við sértækan stuðning við leikskólann Lyngholt, Reyðarfirði
Leikskólinn Lyngholt

Leikskólakennarar við leikskólann Lyngholt, Reyðarfirði
Leikskólinn Lyngholt

Deildarstjóri við leikskólann Lyngholt, Reyðarfirði
Leikskólinn Lyngholt

Skólastjóri Víðistaðaskóla í Hafnarfirði
Hafnarfjarðarbær

Leikskólakennarar við leikskólann Eyrarvelli, Neskaupstað
Leikskólinn Eyrarvellir

Deildarstjóri við leikskólann Eyrarvelli, Neskaupstað
Leikskólinn Eyrarvellir

Heilsuleikskólinn Holtakot auglýsir eftir einstaklingi til að sinna stöðu snemmtækrar íhlutunar
Garðabær

Kennarar óskast til starfa á yngsta stig og miðstig í Lindaskóla
Lindaskóli

Umsjónarkennari við Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla
Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóli

Deildarstjóri við leikskóladeild Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla
Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóli

Leikskólakennarar óskast í Teigasel Akranesi
Leikskólinn Teigasel

Kennarar - Skarðshlíðarleikskóli
Hafnarfjarðarbær