

Kastrup leitar að starfsfólki í sal – fullt starf og hlutastarf
Kastrup leitar að starfsfólki – fullt starf og hlutastarf
Veitingastaðurinn Kastrup í miðbæ Reykjavíkur leitar að jákvæðum og áreiðanlegum einstaklingum í bæði fullt starf og hlutastarf. Við erum skandinavískur veitingastaður með metnað fyrir mat, þjónustu og góðu starfsumhverfi.
Fullt starf – 2-2-3 vaktaplan
Við leitum að einstaklingi í fullu starfi, sem vinnur eftir 2-2-3 vaktaplani. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni í sal, eftir hæfni og reynslu.
Hlutastarf – aðra hvora helgi og eftir þörfum
Einnig vantar okkur hlutastarfsmenn sem geta unnið kvöldvaktir aðra hvora helgi og tekið aukvaktir eftir samkomulagi. Hentar vel með námi eða öðrum störfum.
Við leitum að fólki sem er:
-
Tímanæmt, þjónustulundað og sveigjanlegt
-
Áhugasamt um matargerð og góð samskipti
-
Með reynslu (kostur, en ekki skilyrði)
Við bjóðum:
-
Skemmtilegt og samheldið teymi
-
Gott skipulag og sveigjanleg vinnutilhögun
-
Þjálfun og tækifæri til að vaxa í starfi
Staðsetning: Kastrup, Hverfisgata 6 – miðbær Reykjavíkur
Starfshlutfall: Fullt starf eða hlutastarf
Fullt starf – þjónn / starfsmaður í sal (2-2-3 vaktakerfi):
-
Móttaka gesta og fagleg þjónusta við borð
-
Upplýsa gesti um matseðil og veita ráðgjöf um rétti og drykki
-
Taka niður pantanir og sjá um afgreiðslu
-
Halda vinnusvæði snyrtilegu og fylgja hreinlætisstöðlum
-
Samstarf við aðra starfsmenn í sal og eldhúsi
-
Gæta þess að gestir upplifi vinalega og vandaða þjónustu
- Mjög góð kunnátta í íslensku er nauðsynleg.
Hlutastarf – þjónn á kvöldin (aðra hvora helgi + aukavaktir):
-
Þjónusta við gesti á kvöldin, með bros á vör
-
Taka pantanir, bera fram mat og drykki
-
Hafa góða yfirsýn yfir borðasvæði og tryggja góða upplifun
-
Þrif og frágangur í lok vaktar
-
Vera tilbúin(n) að aðstoða við önnur tilfallandi verkefni
-
Mjög góð enskukunnátta er mikilvæg – íslenska væri líka mjög gott.
-
Menntun í ferðaþjónustu, veitinga- eða þjónustugreinum er kostur – en ekki skilyrði
-
Góð kunnátta í þjónustu og fagleg framkoma er mjög mikilvæg
- Matur og drykkur á vöktum samkvæmt samkomulagi
-
Vinna í fallegu og notalegu umhverfi í miðbæ Reykjavíkur
-
Samheldið og vingjarnlegt starfsfólk
-
Tækifæri til að þróast í starfi og taka þátt í vexti staðarins
-
Fræðsla og þjálfun í þjónustustarfi ef þar













