

🍸 Kanntu að hrista upp í stemningunni?
OCHE Reykjavík leitar að barþjónum! 🎯
Ertu snillingur á bak við barinn, með bros á vör, hraðar hendur og gott auga fyrir frábærri þjónustu?
Þá gætir þú verið akkúrat manneskjan sem okkur vantar!
Hjá OCHE snýst allt um góða drykki, frábæra stemningu og ógleymanlega upplifun. Við erum í skemmtanabransanum og okkur finnst mikilvægt að hafa gaman í vinnunni!
Við leitum að hressum, jákvæðum og kraftmiklum barþjónum sem kunna að halda haus þegar mikið er að gera, njóta þess að vinna með fólki og vita að besta þjónustan felst í miklu meira en því sem er í glasinu.
🍹 Hvað er í þinni blöndu?
Engin kvöld eru eins!
Eina stundina ertu að hrista kokteila, þá næstu að hella upp á ískaldan bjór og áður en þú veist af er barinn orðinn miðpunktur stemningarinnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Útbúa og framreiða kokteila, drykki og aðrar veitingar af fagmennsku.
-
Tryggja hraða, jákvæða og persónulega þjónustu.
-
Skapa góða stemningu og frábæra upplifun fyrir gesti.
-
Sjá um undirbúning, áfyllingar og frágang á barnum.
-
Tryggja hreinlæti, skipulag og snyrtilegt vinnuumhverfi.
-
Vinna náið með þjónustuteyminu svo allt gangi eins og vel smurð vél
Íslenska
Enska



