Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær er þriðja stærsta sveitarfélag landsins og þar starfa um 2000 manns. Áhersla er lögð á að hjá bænum starfi fólk sem getur veitt bestu þjónustu sem völ er á af þekkingu, ábyrgð og metnaði.
Hafnarfjarðarbær

Kannt þú allt á tölvur?

Er leitað til þín þegar þarf að laga eða tengja tölvur? Okkur hjá Hafnarfjarðarbæ vantar einmitt þannig aðili til starfa hjá okkur í flottan hóp í tölvudeildina okkar.

Hafnarfjarðarbæ hefur verið leiðandi bæjarfélag við innleiðingu á stafrænum lausnum og vill vera þar í fararbroddi.

Um er að ræða starf verkefnastjóra í fullt starf í tölvudeild bæjarins.

Starfið felst í að vinna að þróun, innleiðingu og daglegum rekstri tölvukerfa og notendalausna. Fylgja stefnum og verklagsreglum deildarinnar og veita bestu mögulegu þjónustu hverju sinni með það að markmiði að notendur kerfa og lausna nái að nýta sér þau sem best í störfum sínum.

Tölvudeild fer með stjórnun og stefnumótun í tölvumálum bæjarins og tengdra stofnana, ásamt samhæfingu og eftirlit. Deildin sér um rekstur allra tölvukerfa og að meðhöndlun gagna sé í samræmi við þarfir bæjarins og öryggiskröfur.

Helstu verkefni og ábyrgð
Notendaþjónusta með þjónustu símleiðis, um póstkerfi, í gegnum önnur tölvukerfi og með yfirtöku tölvubúnaðar
Annast bilanagreiningu og vinnur að eftirliti, uppsetningu og viðhaldi á vél- og hugbúnaði
Vinna með deildarstjóra að áætlunum um viðhald og þróun tölvuumhverfisins
Verkefnastýring þróunar – og innleiðingarverkefna á stafrænum tæknilausnum m.a. þróun, innleiðing og þjónusta við Microsoft 365 skýjalausnir eins og Azure og aðrar notendalausnir
Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni og samkvæmt starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi s.s diplóma í kerfisfræði
Microsoft gráður sem nýtast í starfi æskilegar
Reynsla af því að stýra verkefnum tengt innleiðingum á stafrænum tæknilausnum
Þekking á Microsoft 365 skýjalausnum eins og Azure og öðrum notendalausnum
Þekking og reynsla á rekstri netþjóna og gagnagrunna
Þekking og reynsla af Active Directory, stýrikerfum og öðrum sérhæfðum búnaði
Reynsla af rekstri og innleiðingu tölvukerfa og við notendaþjónustu
Jákvætt viðmót, þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
Auglýsing stofnuð12. september 2023
Umsóknarfrestur25. september 2023
Starfstegund
Staðsetning
Strandgata 6, 220 Hafnarfjörður
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Má bjóða þér smákökur? Alfreð notar vafrakökur til að greina umferð um vefinn og bæta upplifun þína. Sjá meira.