Te & kaffi
Te & kaffi
Te & kaffi

Kaffibarþjónn 70–100% starf hjá Te & Kaffi

Langar þig að vinna með góðu fólki, læra að gera frábært kaffi og skapa góða upplifun fyrir viðskiptavini?

Við hjá Te & Kaffi erum að leita að hressum og þjónustulunduðum einstaklingum til að bætast í hópinn á kaffihúsunum okkar. Um er að ræða 70–100% starf og leitum við að fólki sem getur hafið störf á næstunni.

Reynsla af kaffihúsastörfum er kostur en alls ekki skilyrði. Við sjáum um þjálfun og kennum þér það sem þú þarft að kunna.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið

Sem kaffibarþjónn hjá Te & Kaffi verður þú hluti af öflugu teymi þar sem áhersla er lögð á góða þjónustu, gæði og jákvæða upplifun viðskiptavina.

Starfið felur meðal annars í sér að:

  • Taka á móti viðskiptavinum og veita framúrskarandi þjónustu
  • Laga kaffi- og tedrykki að lokinni þjálfun
  • Útbúa mat og annað meðlæti
  • Taka á móti og afgreiða pantanir
  • Opna og loka kaffihúsi
  • Sjá um frágang, þrif og önnur dagleg verkefni á kaffihúsinu

Við leitum að þér ef þú:

  • Hefur gaman af fólki og góðri þjónustu
  • Ert jákvæð/ur, hress og áreiðanleg/ur
  • Getur unnið sjálfstætt og sýnt frumkvæði
  • Átt auðvelt með að tileinka þér nýja verkferla
  • Hefur góða samskiptahæfni og ríka þjónustulund
  • Hefur áhuga á kaffi og langar að læra meira
Auglýsing birt11. ágúst 2026
Umsóknarfrestur24. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar